Þegar jólastressið gerir vart við sig

Mynd af frétt Þegar jólastressið gerir vart við sig
02.12.2019

Nú er sá árstími þegar margir finna fyrir aukinni streitu. Í dag vitum við að það er fyrst og fremst magn og tíðni streitu sem hefur áhrif á heilsu okkar. Við finnum oft fyrir vægri streitu þegar við stöndum frammi fyrir verkefnum daglegs lífs, án þess að það geri okkur illt. Streitan má hins vegar ekki verða svo mikil að hún trufli lífsgæði okkar, hafi áhrif á svefn, ýti undir kvíða og vöðvabólgu.
Það er því mikilvægt öllum að kunna leiðir til að halda streitu innan viðráðanlegra marka. Hér eru nokkur ráð sem geta gagnast vel í því sambandi:

Slökun

Lærðu árangursríkar aðferðir til að slaka á og notaðu þær reglulega. Hægt er að hlusta á slökunaræfingar á netinu auk þess sem ýmis smáforrit eru til með aðferðum til að koma ró á huga og líkama.
Hreyfing, líka á aðventunni: 
Fáðu þér göngutúr í hádeginu, skrepptu í sund eftir vinnu eða taktu á því í ræktinni. Skráðu þig á dansnámskeið. Hreyfing er frábær leið til að fá útrás, losa um spennu og auka vellíðan.

Samvera í aðventunni

Hittu vin yfir kaffibolla, leiktu við barnið þitt eða horfðu á mynd með fjölskyldunni. Góðar samverustundir með þeim sem þér líður vel með eru afslappandi og auka vellíðan. 

Daglegar ánægjustundir

Passaðu að dagleg rútína innihaldi ekki aðeins skyldur og kröfur heldur einnig ánægjustundir. Það þarf ekki að vera tímafrekt, dýrt eða flókið að finna stundir til að njóta lífsins, t.d. að fara aðeins út og anda að sér fersku lofti, setjast á bekk og virða fyrir sér mannlífið, eiga náðuga stund með góðri bók eða sjónvarpsþætti eða njóta þess að borða góðan mat í hádeginu.

Endurmat á viðhorfum 

Stundum höfum við tamið okkur viðhorf, venjur og viðbrögð sem gera ekkert annað en að auka á streitu okkar. Óþolinmæði í umferðinni er gott dæmi. Gott er að gera greinarmun á því sem við stjórnum og því sem við höfum ekki stjórn á. Hóflegt magn af æðruleysi er nauðsynlegt í lífinu. Ef samskipti við einhvern valda okkur streitu er sömuleiðis gott að mun að við höfum aðeins stjórn á helmingi þeirrar jöfnu, þ.e. framkomu okkar. Við höfum ekki stjórn á því hvað aðrir segja eða gera. Það er mikilvægt að geta sleppt taki á því sem er ekki í okkar höndum.

Draga úr áreiti 

Íhugaðu hvaða aðstæður eða áreiti valda þér streitu og veltu fyrir þér hvort ekki megi fækka þeim. Hefurðu tök á að fara heim úr vinnu á öðrum tíma en háannatíma í umferðinni? Geturðu keypt í matinn í hádeginu þegar færri eru í búðinni? Ertu í miklum samskiptum við fólk sem tekur frá þér orku en gefur lítið í staðinn? Snjalltæki eru einnig lúmskir streituvaldar.

Núvitund 

Lærðu að lifa meira í núinu og vertu með hugann við það sem þú ert að gera hverju sinni. Þú getur ekki breytt því sem liðið er og framtíðin er ekki komin. Það eina sem við höfum til að vinna með er nútíðin, sem er yfirleitt mun viðráðanlegri ef ekki bætast við vangaveltur um það sem er búið eða ókomið.

Leita eftir faglegri aðstoð

Ef streita er mikil eða langvarandi, ef þú býrð við aðstæður sem þér finnst erfitt að ráða við eða finnur fyrir kvíða, depurð eða vonleysi er mikilvægt að leita sér aðstoðar. Pantaðu tíma á heilsugæslustöðinni þinni og ræddu þessi mál við fagaðila. Einnig er að finna fróðleik um streitu og heilsu á www.heilsuvera.is.

Margrét Héðinsdóttir, hjúkrunarfræðingur og vefstjóri Heilsuveru

Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu