Á hverju ári heldur Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins (HH) svokallaða Fræðadaga. Núna eru þeir 31. október og 1. nóvember.
Fræðadagar eru ráðstefna sem stendur í einn og hálfan dag, eftir hádegi á fimmtudegi og allan föstudaginn.
Ráðstefnan er símenntunarvettvangur fyrir starfsmenn HH og annað fagfólk í heilsugæslu. Þarna fá starfsmenn fjölbreytta fræðslu sem hjálpar þeim svo að vinna starf sitt vel og veita góða þjónustu.
Þessa tvo daga er lágmarksmönnun á heilsugæslustöðvum og öðrum starfsstöðvum HH.
Mjög fá viðtöl eru bókuð þessa daga og áhersla lögð á að sinna áríðandi erindum.
Við biðjumst velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda og þökkum skilninginn.