Lúsmý herjar á landann

Mynd af frétt Lúsmý herjar á landann
05.07.2019

Lúsmý herjar nú á landann sem aldrei fyrr. Í þeim tilvikum eins og svo mörgum öðrum er forvörn besta vörnin en ef maður lendir í því að vera bitinn er gott að kunna rétta meðhöndlun. Hér koma því ráðleggingar frá heilsugæslunni.

Oftast eru bitin meinlaus en þau geta valdið óþægindum og kláða þar sem þau virkja ofnæmisviðbrögð líkamans. Í langflestum tilfellum getur fólk sjálft meðhöndlað einkennin og ekki þörf á að leita frekari læknisaðstoðar.

Fyrirbyggjandi ráð

  • Lúsmý bítur inni í húsum og á nóttunni. Það þarf því að koma í veg fyrir að það komist inn og verja sig á nóttunni:
  • Þéttriðið flugnanet í glugga getur komið í veg fyrir að lúsmýið berist inn.
  • Gott að vera í náttfötum og sokkum. Sokkarnir eru þá settir yfir buxnaskálmarnar og skyrtan ofan í buxnastrenginn. Best er ef ermarnar eru þröngar og liggja þétt að húðinni.
  • Lúsmý þolir ekki vind, því gætu viftur í svefnherbergjum hjálpað.
  • Skordýravörn sem sett er á húð og föt getur hjálpað. Vörn sem inniheldur 50% DEET (diethyltoluamide) er áhrifaríkust. Fyrir börn má skordýravörn ekki innihalda meira en 10% af DEET.

Meðhöndlun á bitum eftir lúsmý

Allskonar húsráð eru í gangi varðandi meðhöndlun á bitum. Hafa skal í huga að sum efni geta valdið enn frekari ertingu í húðinni og því ekki til bóta. Hér koma nokkur ráð sem þykja á rökum reist:

  • Kældu bólgið svæði í um 10 mínútur.
  • Verkjalyf t.d. parasetamól slær á óþægindin og óhætt að nota skv. ráðleggingum á pakka.
  • Hafðu hærra undir höndum og fótum ef bit eru þar, það getur dregið úr bólgumyndun.
  • Ekki klóra í húðina þar sem það getur aukið líkur á sýkingum. Stutt kæling dregur úr kláða.
  • Ofnæmistöflur fást án lyfseðils í apótekum. Þessi lyf hindra áhrif histamíns í líkamanum og geta minnkað kláða og útbrot.
  • Sterakrem til dæmis Mildison fæst án lyfseðils í apótekum. Kremið minnkar bólgur og kláða. Sterakrem ætti ávallt að bera á í þunnu lagi og í stuttan tíma í einu. Forðast ætti að bera sterakrem í andlit eða á sár.
  • Steratöflur, eingöngu ef um svæsin útbrot er að ræða. Þá skal leita á næstu heilsugæslustöð og fá frekari ráðleggingar.

Hvenær skal leita til heilsugæslu?

Ef útbrot eru svæsin og ná yfir stór svæði á líkamanum er mælt með því að leita til næstu heilsugæslustöðvar. Einnig ef útbrotin og bólgan vex í stað þess að dvína á nokkrum dögum. Ef um alvarlegri einkenni er að ræða svo sem öndunarfæraerfiðleika, bólgu í hálsi, andliti eða munni, hraðan hjartslátt og skerta meðvitund, getur það bent til bráðaofnæmis. Þá skal leita strax á bráðamóttöku eða hringja í 112.

Á heilsuvera.is er að finna leiðbeiningar um skordýrabit. Einnig er þar hægt að hafa samband við hjúkrunarfræðing á netspjallinu og við heilsugæslustöðina sína í gegnum Mínar síður eða símleiðis og fá ráðgjöf.

Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar

Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu