Það er síðdegisvakt á öllum heilsugæslustöðvunum okkar í sumar.
Fimm heilsugæslustöðvar eru með óbreytta síðdegisvakt en hinar tíu stytta opnunartímann vegna sumarleyfa.
Allar stöðvarnar hafa síðdegisvakt a.m.k. frá kl. 16:00 til 17:00 mánudaga til fimmtudaga.
Sumar stöðvarnar eru líka með opna síðdegisvakt á föstudögum og sumstaðar er opið til kl. 18:00.
Einnig er mismunandi hvort bóka þarf tíma samdægurs og annars staðar er hægt að mæta án fyrirvara. Allt fer þetta eftir aðstæðum og mannafla á hverri heilsugæslustöð.
Við bendum einnig á opna móttöku stöðvanna á daginn og samdægurstíma. Hafðu samband við heilsugæslustöðina þína til fá upplýsingar um þessa möguleika.
Nánari upplýsingar um opnunartíma síðdegisvakta er að finna á upplýsingasíðum stöðvanna hér á vefnum.
- Heilsugæslan Árbæ
- Heilsugæslan Efra- Breiðholti
- Heilsugæslan Efstaleiti
- Heilsugæslan Fjörður
- Heilsugæslan Garðabæ
- Heilsugæslan Glæsibæ
- Heilsugæslan Grafarvogi
- Heilsugæslan Hamraborg
- Heilsugæslan Hlíðar
- Heilsugæslan Hvammur
- Heilsugæslan Miðbær
- Heilsugæslan Mosfellsumdæmi
- Heilsugæslan Mjódd
- Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ
- Heilsugæslan Sólvangi
Eftir opnunartíma síðdegisvaktanna okkar tekur Læknavaktin við.