Enn eru nokkur pláss laus á námskeiðið Uppeldi sem virkar - færni til framtíðar sem hefst 6. maí 2019.
Námskeiðið er 4 skipti, 8 klst alls, alltaf á mánudögum, frá kl. 19:30 til 21.30
Þessi námskeið hafa verið mjög vel sótt undanfarin ár. Þau miða að því að skapa sem best uppeldisskilyrði fyrir börn með því að kenna foreldrum jákvæðar og árangursríkar aðferðir.
Fjallað er um hvernig er hægt að:
• Koma í veg fyrir hegðunarerfiðleika
• Hjálpa börnum að þróa með sér öryggi, sjálfstæði og jákvæðni
• Auka eigin styrkleika og færni í foreldrahlutverkinu
• Nota aga á jákvæðan og árangursríkan hátt
• Kenna börnum æskilega hegðun
• Takast á við venjuleg vandamál í uppeldi
Þannig er lagður grunnur að því að barnið þroski með sér eiginleika og læri færni sem gagnast því til frambúðar. Sömuleiðis er dregið úr líkum á erfiðleikum í hegðun, líðan og samskiptum hjá barninu til lengri og skemmri tíma.
Uppeldisnámskeiðin eru haldin af Þroska- og hegðunarstöð og á námskeiðssíðunni eru nánari upplýsingar og skráning.
Sturla Brynjólfsson, sálfræðingur er leiðbeinandi á námskeiðinu.