Magapest tekur á allan líkamann

Mynd af frétt Magapest tekur á allan líkamann
21.02.2019

Sjálfsagt hafa allir lent í því að fá niðurgang sem oft fylgja uppköst. Þetta er óskemmtileg vanlíðan sem tekur á allan líkamann. Yfirleitt er þetta kallað að fá magapest og oftast er þetta merki um veirusýkingu í þarmi, en fleira kemur til greina. Matareitrun er vert að hafa í huga en einnig getur þetta verið bakteríusýking. Ýmsir sjaldgæfari kvillar geta valdið niðurgangi og uppköstum en fæstir velta þeim möguleika fyrir sér þegar veikindin byrja.

Rétt næring og nóg að drekka

Vökvi og sölt tapast úr líkamanum við niðurgang og uppköst, ekki síst ef hiti fylgir veikindunum. Lítil börn og eldri borgarar eru í sérstakri áhættu fyrir vökvatapi. Einkenni vökvataps geta verið til dæmis minnkuð þvaglát, munnþurrkur, þreyta, slappleiki og pirringur. Rétt vökvainntaka og næring er yfirleitt lykillinn að bata. Vatn, sykur og salt í réttri blöndu er mikilvægt. Drekka skal oft og lítið í einu. Forðast skal gosdrykki og sæta safa svo eitthvað sé nefnt. Ef niðurgangur er mikill getur verið skynsamlegt að leita faglegra ráða. Þau fást allan sólarhringinn í síma 1700 eða 1770 hjá hjúkrunarfræðingi Læknavaktarinnar og á heilsugæslustöðvum á dagtíma.

Hvað viðvíkur börnum með mikinn niðurgang og uppköst geta þau misst of mikinn vökva og líkaminn þornað upp. Því er mikilvægt að gefa börnum rétta næringu og sérstaklega nóg að drekka. Best er að gefa sérstaka sykursaltvatnsblöndu, til dæmis Electrorice sem fæst í apóteki. Blandan er seld í duftformi og leyst upp í vatni heima. Best er að hafa vatnið við stofuhita og ekki þarf að sjóða það. Til eru líka sykursaltfreyðitöflurnar Resorb fyrir börn eldri en þriggja ára. Þær eru leystar upp í vatni og fylgja leiðbeiningar með. Einnig má gefa íþróttadrykkinn Gatorade í ¾ á móti vatni.

Börnin fái hollt fæði

Sykursaltvatnsblandan er gefin eftir hver uppköst og niðurgang – og einnig þess á milli. Eftir hver uppköst og niðurgang þurfa börn sem eru léttari en 10 kg að fá 60-120 ml en börn þyngri en 10 kg þurfa að fá 120-240 ml. Best er að barnið drekki blönduna rólega, fái jafnvel bara sopa og sopa í senn, sérstaklega ef barnið er með uppköst.

Auk sykursaltvatnsblöndu má barnið fá sitt holla venjulega fæði. Börn sem fá brjósta- eða þurrmjólk eiga að halda því áfram. Skynsamlegt getur verið í byrjun veikinda að draga úr kúamjólk, skyri og sætum mjólkurvörum, sérstaklega ef barninu virðist verða illt af þeim.

Soð og sykursaltvatn

Engin lyfjameðferð er við venjulegum niðurgangi hjá börnum. Ef þessar ráðleggingar eru ekki að gagnast og barnið er áfram veikt, drekkur og nærist lítið er mikilvægt að hafa samband við lækni eða hjúkrunarfræðing og láta meta ástand barnsins. Eins ef barnið fer að fá fleiri einkenni eins og háan hita eða blóð í hægðum.

Að mörgu leyti gilda sömu heilsuráð fyrir fullorðna hvað varðar niðurgang og uppköst. Mikilvægt er að drekka vel af vökva, til dæmis vatn, vatnsblandað Gatorade, léttsykrað te, tærar bollasúpur eða kjötkraftssoð. Sykursaltvatn og freyðitöflur geta einnig virkað vel.

Ef vel gengur má svo bæta við LGG+, hreinni jógúrt, AB-mjólk, ristuðu brauði, saltkexi, banönum og eplum án hýðis. Síðan pastaréttum, soðnu grænmeti, kartöflum og hrísgrjónum, soðnum/bökuðum fiski og kjöti. Byrja þannig rólega á léttmeltanlegum mat, borða oft og lítið í einu, en meðan uppköst vara er best að vera á fljótandi fæði. Gos, ávaxtasafa, kaffi, orkudrykki, hrátt grænmeti, trefjaríkar vörur eða sterkan eða brasaðan mat ber að forðast uns veikindi eru að baki. Ef fólk er á hægðalosandi lyfjum er rétt að hætta á þeim þar til það er orðið fullfrískt aftur.

Hreinlæti mikilvægt

Í veikindum eins og að framan er lýst er mikilvægt að passa vel upp á handþvott og hreinlæti. Lyf við niðurgangi, til dæmis Imodium, skal ekki taka nema hann sé langvarandi og þá í samráði við lækni.

 

Þórður G. Ólafsson heimilislæknir Heilsugæslunni Efra-Breiðholti

Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu