Nokkur pláss laus á námskeiðið: Uppeldi sem virkar

Mynd af frétt Nokkur pláss laus á námskeiðið: Uppeldi sem virkar
29.01.2019

Enn eru nokkur pláss laus á námskeiðið Uppeldi sem virkar - færni til framtíðar sem hefst 4. mars 2019.

Þessi námskeið hafa verið mjög vel sótt undanfarin ár. Þau miða að því að skapa sem best uppeldisskilyrði fyrir börn með því að kenna foreldrum jákvæðar og árangursríkar aðferðir.

Fjallað er um hvernig er hægt að:

Koma í veg fyrir hegðunarerfiðleika
Hjálpa börnum að þróa með sér öryggi, sjálfstæði og jákvæðni
Auka eigin styrkleika og færni í foreldrahlutverkinu
Nota aga á jákvæðan og árangursríkan hátt
Kenna börnum æskilega hegðun
Takast á við venjuleg vandamál í uppeldi

Þannig er lagður grunnur að því að barnið þroski með sér eiginleika og læri færni sem gagnast því til frambúðar. Sömuleiðis er dregið úr líkum á erfiðleikum í hegðun, líðan og samskiptum hjá barninu til lengri og skemmri tíma.

Uppeldisnámskeiðin eru haldin af Þroska- og hegðunarstöð og á námskeiðssíðunni eru nánari upplýsingar.