Leiðbeinenda- og ráðgjafanámskeiðið Uppeldi sem virkar – færni til framtíðar verður haldið á vegum Þroska- og hegðunarstöðvar 15. til 16. nóvember næstkomandi. Námskeiðið stendur til boða fagfólki með menntun á uppeldis- eða heilbrigðissviði.
Á Leiðbeinenda- og ráðgjafanámskeiðinu eru kynntar aðferðir og hugmyndafræði Uppeldi sem virkar – Færni til framtíðar og farið rækilega í skipulag, framkvæmd og innihald samnefndra foreldranámskeiða.
Þátttaka í námskeiðinu veitir réttindi til að verða leiðbeinandi á uppeldisnámskeiðum fyrir foreldra og að nota öll þar til gerð námskeiðsgögn.
Í Lýðheilsustefnu Velferðaráðuneytis frá september 2016 kemur fram að unnið skuli að því að námskeiðið Uppeldi sem virkar – færni til framtíðar verði kennt reglulega í öllum heilbrigðisumdæmum með því að sjá fagfólki í ung- og smábarnavernd og mæðravernd fyrir endurmenntun um efnið og er námskeiðið frítt fyrir hjúkrunarfræðinga í ung- og smábarnavernd.
Skráning er í tölvupósti til Þroska- og hegðunarstöðvar.
Leiðbeinenda- ráðgjafanámskeiðið Uppeldi sem virkar
08.11.2018