Bangsaspítali, 23. september, frá kl. 10 til 15

Mynd af frétt Bangsaspítali, 23. september, frá kl. 10 til 15
20.09.2018

Í tilefni alþjóðlega bangsadagsins, 23. september, verður haldinn bangsaspítali á 3 heilsugæslustöðvum.

  • Heilsugæslan Efstaleiti
  • Heilsugæslan Grafarvogi
  • Heilsugæslan Sólvangi

Bangsaspítalinn er opinn frá kl. 10:00 til 15:00.

Öllum börnum, ásamt foreldrum/forráðamönnum, er boðið að koma í heimsókn með veika eða slasaða bangsa.

Tilgangur verkefnisins er tvíþættur: Annars vegar til að fyrirbyggja hræðslu hjá börnum við lækna og heilbrigðisstarfsfólk og hins vegar að gefa læknanemum á yngri árum tækifæri til að æfa samskipti við börn

Heimsóknin fer þannig fram að hvert barn kemur með sinn eigin bangsa. Gott er að ræða fyrirfram við barnið um það hvernig bangsinn er veikur (hvort hann sé t.d. með hálsbólgu, magapest eða brotinn fót).

Þegar á heilsugæsluna er komið fær barnið að innrita bangsann og að því loknu kemur bangsalæknir og vísar barninu inn á læknastofu þar sem læknirinn skoðar bangsann og veitir honum þá aðhlynningu sem hann þarf á að halda.

Lýðheilsufélag læknanema sér um Bangsaspítalann og þau vonast til þess að sjá sem flesta.