Ráðning heimilislæknis við Heilsugæsluna Sólvangi

Mynd af frétt Ráðning heimilislæknis við Heilsugæsluna Sólvangi
29.08.2017

Ragnar Freyr Rúnarsson, hefur verið ráðinn sem sérfræðingur í heimilislækningum við Heilsugæsluna Sólvang frá 8. águst 2017.

Freyr lauk grunnnámi læknisfræðinnar frá Háskólanum í Árósum janúar 2010 og kandídatsári hérlendis í kjölfarið.

Að því loknu tók við sérnám í heimilislækningum sem lauk í maí 2016.

Freyr tók sérnámið í Heilsugæslunni Grafarvogi og hefur starfað þar síðan.

Þess má geta að Freyr er einnig með BS gráðu í sameindalíffræði frá Háskóla Íslands.

Við bjóðum Frey velkominn til starfa í Heilsugæslunni Sólvangi.