Í haust verður haldið sex vikna opið foreldranámskeið um núvitund í Heilsugæslunni Miðbæ.
Námskeiðið hentar öllum foreldrum, óháð aldri og þroska barns. Byggt á aðferðum núvitundar og fjallað um taugasálfræði barna og unglinga.
Fræðslan er ætluð til að bæta samskipti foreldra og barna, hjálpa foreldrum að efla sig í foreldrahlutverkinu, minnka álag og auka samvinnu innan fjölskyldunnar. Kenndar eru einfaldar æfingar í núvitund og samhygð.
Námskeiðið er annan hvern þriðjudag frá kl. 8:30 til 10:00 og geta foreldra mætt í einn tíma eða alla sex.
Umfjöllunarefni:
- 3. október: Tilfinningar og taugaþroski barna
- 17. október: Samkennd og taugaþroski barna
- 31. október: Góður svefn
- 14. nóvember: Samningaleið í samskiptum
- 28. nóvember: Grunnæfingar í núvitund
- 12. desember: Núvitund og samhygð
Umsjón hefur Sólveig Hlín Kristjánsdóttir, sérfræðingur í klínískri barnasálfræði
Námskeiðið er opið öllum foreldrum en nauðsynlegt er að skrá sig í móttöku stöðvarinnar, sími 585-2600 eða með tölvupósti.