Til að bæta þjónustu við skjólstæðinga okkar hafa verið gerðar breytingar á afgreiðslu lyfjaendurnýjana, skólavottorða og símatíma heimilislækna á Heilsugæslunni Sólvangi.
Nú er tekið er á móti beiðnum um lyfjaendurnýjun og skólavottorð alla virka daga frá kl. 9:00 til 11:30 í síma: 550-2650.
Við bendum einnig á að með rafrænum skilríkjum er hægt að óska eftir lyfjaendurnýjun í gáttinni heilsuvera.is.
Símatíma hjá læknum þarf að panta í síma 550-2600 fyrir kl. 11:00 alla virka daga. Læknar hringja í uppgefið símanúmer samdægurs.
Símatímar haldast óbreyttir hjá Emil L. Sigurðssyni á mánudögum kl. 10:30-11:00 í síma 550-2667 og Gunnari Þór Jónssyni alla virka daga kl. 9:30-9:50 í síma 550-2681.