Tannlækningar gjaldfrjálsar fyrir 3-17 ára börn

Mynd af frétt Tannlækningar gjaldfrjálsar fyrir 3-17 ára börn
28.12.2016

Frá 1. janúar 2017 er kostnaður vegna tannlækninga barna á aldrinum 3 til og með 17 ára greiddur að fullu af Sjúkratryggingum Íslands, að frátöldu 2500 kr árlegu komugjaldi.

Vakin er athygli á því að 4 og 5 ára börn eiga nú einnig rétt á gjaldfrjálsum tannlækningum.

Greiðsluþátttaka sjúkratrygginga er háð því að börnin séu skráð hjá heimilistannlækni og því eru foreldrar hvattir til að skrá barn/börn sín í Réttindagátt Sjúkratrygginga Íslands á www.sjukra.is. 

Tannlæknar geta einnig séð um skráninguna, sé þess óskað. 

Mælt er með skráningu barns hjá heimilistannlækni þegar það nær eins árs aldri. Lista yfir heimilistannlækna má nálgast á vef Sjúkratrygginga Íslands

Tannlækningar eru nú gjaldfrjálsar fyrir eftirfarandi hópa:

  • börn á aldrinum 3 ára til og með 17 ára.
  • börn í bráðavanda, sem eru yngri en þriggja ára og búa við erfiðar félagslegar aðstæður. Tilvísun þarf að berast tannlækni frá heilsugæslu, barnaverndar- eða félagsmálayfirvöldum vegna þessara barna og skilyrði að Sjúkratryggingar Íslands hafi samþykkt umsókn frá tannlækni á grundvelli tilvísunar.

Gjaldfrjáls tannlæknaþjónusta barna hefur verið innleidd í áföngum frá árinu 2013. Nú styttist í að innleiðingunni ljúki, en frá 1. janúar 2018 verða tannlækningar allra barna yngri en 18 ára greiddar að fullu af Sjúkratryggingum Íslands, að frátöldu 2500 kr árlegu komugjaldi.