Nýr yfirlæknir á Göngudeild sóttvarna og hælisleitenda

Mynd af frétt Nýr yfirlæknir á Göngudeild sóttvarna og hælisleitenda
18.11.2016

Kai Blöndal, sérfræðingur í lungnalækningum hefur verið ráðin yfirlæknir á Göngudeild sóttvarna og hælisleitenda, frá 1. nóvember 2016.  

Kai hlaut almennt lækningaleyfi á Íslandi í maí 2005 og sérfræðileyfi í lungnalækningum sama ár. Hún hefur starfað sem lungnalæknir á Göngudeild sóttvarna frá 1. júní 2005 og sinnti starfi yfirlæknis á deildinni tímabundið frá 1. september 2016. Hún lauk doktorsprófi í lungnalækningum frá Tartu í Eistlandi árið 2013. 

Við bjóðum Kai velkomna til áframhaldandi starfa innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.