Á Leiðbeinenda- og ráðgjafanámskeiðinu eru kynntar aðferðir og hugmyndafræði Uppeldi sem virkar – Færni til framtíðar og farið rækilega í skipulag, framkvæmd og innihald samnefndra foreldranámskeiða.
Rík áhersla er lögð á notkun jákvæðra aðferða í uppeldi, á gildi fyrirmynda, markvissa kennslu æskilegrar hegðunar og nauðsyn fyrirhyggju, skipulags og samkvæmni uppalenda.
Á Leiðbeinendanámskeiðinu er einnig fjallað um uppeldi og uppeldisráðgjöf almennt og farið í hagnýtt efni sem miðar að því að auka færni þátttakenda í að veita árangursríka ráðgjöf um uppeldi bæði til foreldra og starfsfólks í uppeldisstörfum.
Námskeiðið er ætlað fagfólki sem sinnir uppeldisráðgjöf og/eða er í beinum tengslum við börn á ýmsum aldri. Þátttaka á námskeiðinu veitir réttindi til að verða leiðbeinandi á uppeldisnámskeiðum fyrir foreldra og að nota öll þar til gerð námskeiðsgögn.
- Hagnýtar upplýsingar um námskeiðið
- Þátttakendur: Námskeiðið stendur til boða fagfólki með menntun á uppeldis- eða heilbrigðissviði sem starfar við uppeldi barna og/eða við ráðgjöf og fræðslu um uppeldi til foreldra eða starfsfólks.
- Hámarksfjöldi þátttakenda á hverju námskeiði er 20.
- Tímasetning: 16. og 17. nóv. kl. 9:00-15:00 báða dagana
- Staður: Þroska- og hegðunarstöð, Þönglabakka 1, 109 Reykjavík,
- Þátttökugjald: er 17.000 kr. fyrir starfsfólk heilsugæslu og 20.000 kr. fyrir annað fagfólk. Öll námskeiðs- og kennslugögn auk kaffiveitinga eru innifalin.
- Leiðbeinendur: Gyða Haraldsdóttir sálfræðingur og Lone Jensen uppeldisráðgjafi.
- Nánari upplýsingar um námskeiðin má fá á Þroska og hegðunarstöð í síma 585-1350 eða throski@heilsugaeslan.is
Skráning er hér á vefnum