Haukur Heiðar Hauksson, hefur verið ráðinn sem sérfræðingur í heimilislækningum við Heilsugæsluna Sólvang frá 1. júlí 2016.
Haukur lauk grunnnámi læknisfræðinnar í Háskóla Íslands á árunum 2002 til 2008 og kandídatsprófi í kjölfarið. Að því loknu starfaði hann í afleysingum á Sólvangi og á bráðamóttöku Landspítala Háskólasjúkrahúss.
Haukur hóf formlega sérnám í heimilislækningum haustið 2011 sem hann lauk þann 1. mars síðastliðinn.
Við viljum bjóða Hauk Heiðar velkominn til starfa innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.