Þann annan júní voru auglýst til umsóknar ný störf sálfræðinga hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH). Alls sóttu 26 um en einn dró umsókn til baka.
Fjölgun sálfræðinga hjá HH er liður í því að efla sálfræðiþjónustu við börn og unglinga á heilsugæslustöðvum okkar.
Hér eru nöfn þeirra sem voru ráðnir:
- Alda Ingibergsdóttir, Heilsugæslan Efstaleiti
- Auður Erla Gunnarsdóttir, Heilsugæslan Hvammi
- Gunnar Karl Karlsson, Heilsugæslan Árbæ
- Hólmfríður Dögg Einarsdóttir, Heilsugæslan Mosfellsumdæmi
- Magnús Baldursson, Heilsugæslan Garðabæ
- Sigríður Snorradóttir, Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ
- Sólveig Hlín Kristjánsdóttir, Heilsugæslan Miðbæ
Við bjóðum þau velkomin til starfa hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.