Helga Sævarsdóttir hefur verið ráðin fagstjóri hjúkrunar við Heilsugæsluna Árbæ.
Helga Sævarsdóttir útskrifaðist með B.S. gráðu í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands 1994. Hún lauk meistaraprófi í lýðheilsuvísindum frá heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands 2011.
Helga hefur fjölþætta starfsreynslu við hjúkrun og átján ára reynslu af starfi innan heilsugæslu. Hún hóf störf á Heilsugæslunni Mosfellsbæ 1999 og starfaði þar sem hjúkrunarfræðingur á heilsugæslustöðinni til ársins 2009 er hún flutti sig yfir á Heilsugæsluna Árbæ þar sem hún starfar í dag.
Við bjóðum Helgu velkomna til nýrra starfa innan Heilsugæslunnar.