Hreinar tennur - heilar tennur

Mynd af frétt Hreinar tennur - heilar tennur
01.02.2016

Embætti landlæknis og Tannlæknafélag Íslands standa fyrir árlegri tannverndarviku 1. – 7. febrúar 2016. Tannverndarvikan árið 2016 er helguð því að hvetja landsmenn til að þess að bursta tennur með flúortannkremi að lágmarki tvisvar á dag í tvær mínútur og aðstoða börn til 10 ára aldurs.

Kjörorð vikunnar er hreinar tennur - heilar tennur

Fleiri börn njóta lægri tannlækniskostnaðar. Öll börn sem verða sex og sjö ára á þessu ári bætast í hóp þeirra barna sem fá gjaldfrjálsa tannlæknisþjónustu. Tannlækningar barna frá 6 til og með 17 ára auk þriggja ára barna eru nú greiddar að fullu af Sjúkratryggingum Íslands, að frátöldu 2500 kr árlegu komugjaldi.

Fleiri börn njóta lægri tannlækniskostnaðar. Öll börn sem verða sex og sjö ára á þessu ári bætast í hóp þeirra barna sem fá gjaldfrjálsa tannlæknisþjónustu.

Tannlækningar barna frá 6 til og með 17 ára auk þriggja ára barna eru nú greiddar að fullu af Sjúkratryggingum Íslands, að frátöldu 2500 kr árlegu komugjaldi. Forsenda gjaldfrjálsra tannlækninga er að börnin hafi skráðan heimilistannlækni hjá Sjúkratryggingum Íslands.

Heilsugæslan vinnur að tannvernd

Frá 1. janúar 2016 tekur sjúkraskrárkerfi heilsugæslunnar við rauntímaupplýsingum frá Sjúkratryggingum Íslands um skráningu hjá heimilistannlæknum. Um miðjan janúar voru tæplega 6700 grunnskólanemendur (16%) EKKI með skráðan heimilistannlækni og verður unnið að því hjá skólaheilsugæslu að upplýsa foreldra/forráðamenn um gjaldfrjálsar tannlækningar og vísa umræddum hópi barna í tanneftirlit.

Í ung- og smábarnavernd heilsugæslunnar og leikskólum um allt land er unnið að því að upplýsa og hvetja foreldra/forráðamenn til að ganga frá skráningu barna í Réttindagátt Sjúkratrygginga Íslands. Tannlæknar geta einnig séð um skráninguna sé þess óskað.

Neysla á sætindum og sykruðum drykkjum eykur hættu á tannskemmdum. Það er betra fyrir líkama og tennur að fá einstöku sinnum sælgæti í lok máltíðar en að borða mikið magn í einu. Landsmenn eru hvattir til að draga úr neyslu sælgætis, einkum á sérstökum „nammidögum“, og huga þá einnig að því að það getur leynst fleira en nammi í skeiðinni á nammibarnum.


Ábyrgð samfélagsins í tannverndarviku

Fyrirtæki sem flytja inn og selja tannhirðuvörur eru hvött til að nýta sér tannverndarvikuna til að kynna vörur sínar. Stjórnendur verslana eru hvattir til að bjóða afsláttarkjör af tannhirðuvörum og hollri matvöru, s.s. ávöxtum og grænmeti og afnema jafnframt afsláttarkjör af sælgæti.

Stjórnendur leik-, grunn- og framhaldsskóla eru hvattir til að leggja áherslu á fræðslu, umfjöllun og viðburði sem tengjast tönnum og tannheilsu. Landsmenn eru hvattir til þess að hirða tennurnar að lágmarki kvölds og morgna og draga úr neyslu sætinda og sykraðra drykkja því þannig má stuðla að betri heilsu og betri tannheilsu.