Heilsunámskeið fyrir foreldra

Mynd af frétt Heilsunámskeið fyrir foreldra
06.01.2015

Heilsugæslan Seltjarnarnesi býður upp á námskeið fyrir foreldra barna sem óska eftir stuðningi við að bæta lífsstíl fjölskyldunnar. 

Miðað er að því að námskeiðið auðveldi foreldrum að koma sér upp venjum og setja reglur sem styðja við heilbrigðan lífsstíl auk þess sem veitt eru gagnleg ráð sem tengjast næringu og hreyfingu.

Skipulag námskeiðs: 

  • Vikulegir hóptímar fyrir foreldra í sex vikur. Þrjú foreldraviðtöl, eitt í upphafi námskeiðs og tvö viðtöl þegar hóptímum er lokið.
  • Byrjað er að taka við skráningum á næsta námskeið sem hefst 2. febrúar 2015.
  • Hóptímar verða á mánudögum kl. 16:30-18:00 á Landakotsspítala (Guli salur - 6. hæð) þar sem Heilsugæslan Seltjarnarnesi er nú til húsa.
  • Leiðbeinendur eru Arna Borg Einarsdóttir hjúkrunar- og lýðheilsufræðingur og Sólveig Þórhallsdóttir hjúkrunarfræðingur.
  • Verð fyrir námskeiðið er 8000 kr.

Skráning og nánari upplýsingar:

  • Heilsugæslan Seltjarnarnesi: 513-2100
  • Arna: arna.borg.einarsdottir@heilsugaeslan.is
  • Sólveig: solveig.thorhallsdottir@heilsugaeslan.is