Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, Inga Þórsdóttir, forseti Heilbrigðisvísindasviðs, Svanhvít Jakobsdóttir, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Ófeigur T. Þorgeirsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins undirrituðu í vikunni samstarfssamning um Heilsutorg háskólanema. Samningurinn nær til þriggja ára, eða til ársins 2017 og kveður á um þróun og rekstur þverfræðilegrar heilbrigðismóttöku fyrir háskólanema.
Á Heilsutorgi munu nemendur Háskóla Íslands geta sótt heildræna heilbrigðisþjónustu. Þjónustuna veita nemendur í framhaldsnámi við Heilbrigðisvísindasvið undir handleiðslu leiðbeinanda. Unnið er með hvern þjónustuþega í þverfræðilegu teymi sem samanstendur af fjórum til fimm nemendum úr mismunandi fræðigreinum heilbrigðisvísinda. Í ár koma nemendur t.d. úr hjúkrunarfræði, ljósmóðurfræði, lyfjafræði, læknisfræði, matvæla- og næringarfræði, sálfræði og sjúkraþjálfun en hvert teymi er samansett út frá þörfum þjónustuþegans. Hugmyndafræði Heilsutorgs byggir á því að þjónustuþeginn er sjálfur virkur þátttakandi í teymisvinnunni og hefur þar af leiðandi áhrif á eigin meðferð. Leitast verður við að bjóða þjónustuþegum eftirfylgni og samfellu í þjónustuferlinu. Þeir sem þurfa sérhæfðari aðstoð verður vísað áfram til viðeigandi þjónustuaðila.
Að sögn Ingu Þórsdóttir, forseta Heilbrigðisvísindasviðs, á verkefnið sér ekki beina erlenda fyrirmynd en hún bendir jafnframt á að úti í hinum stóra heimi sé lögð vaxandi áhersla á þverfræðilegt samstarf í námi og störfum heilbrigðisstétta.
Undirritunin fór fram í Heilsugæslunni Glæsibæ að viðstöddum fulltrúum frá Háskóla Íslands og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Móttakan á Heilsutorgi mun hefja starfsemi sína þann 7. október nk. og verður opið þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 16-18. Heilsutorg er í húsakynnum Heilsugæslunnar Glæsibæ. Opnað verður fyrir tímapantanir innan skamms.
Frekari upplýsingar um verkefnið má finna á heimasíðu Heilsutorgs: heilsutorg.hi.is/
Á myndinni frá undirritun samningsins má sjá Kristínu Ingólfsdóttur, Jónas Guðmundsson, Sigrúnu K. Barkardóttur, Halldór Jónsson, Svanhvít Jakobsdóttur, Ófeig T. Þorgeirsson, Ingu Þórsdóttur og Sóley S. Bender.