Ragnheiður I. Bjarnadóttir hefur verið ráðin í starf yfirlæknis mæðraverndar á Þróunarsviði Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins til fimm ára, frá og með 1. september næstkomandi.
Ragnheiður er sérfræðingur í kvensjúkdóma- og fæðingarhjálp með um 19 ára starfsreynslu og langa reynslu af mæðravernd. Hún er klínískur lektor við Háskóla Íslands og hefur sinnt stundakennslu og handleiðslu lýðheilsu-, ljósmæðra- og læknanema við B.Sc. og meistaraverkefni.
Verkefni yfirlæknis mæðraverndar eru:
- Þróun og samræming mæðraverndar á heilsugæslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu.
- Læknisfræðileg sérfræðiráðgjöf í mæðravernd.
- Klínísk ráðgjöf á heilsugæslustöðvum.
- Gæðaeftirlit og gæðaþróun.
- Rannsóknir og vísindi.
Ragnheiður tekur við af Þóru Steingrímsdóttur sem hefur tekið við samhliða stöðu prófessors í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum við Læknadeild Háskóla Íslands og yfirlæknis á kvenna- og barnasviði Landspítala-háskólasjúkrahúss.
Við bjóðum Ragnheiði hjartanlega velkomna til starfa hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins um leið og við þökkum Þóru kærlega fyrir ánægjulegt samstarf.