Námskeiðið hefst 12. mars, skráning stendur yfir. Námskeiðið er skipulagt út frá rannsökuðum úrræðum sem hafa sýnt góðan árangur hjá ungum konum. Heildræn nálgun sem byggir á áhrifum hugsana á líðan, þjálfun svengdarvitundar (AAT), hreyfingu, slökun og heilbrigðu mataræði.
Í upphafi og lok námskeiðs verða lagðir fyrir kvarðar sem meta lífsgæði, einkenni þunglyndis og lífsstíl.
Á námskeiðinu er meðal annars fjallað um
- Afleiðingar offitu
- Mikilvægi heilbrigðs lífsstíls á meðgöngu
- Tengsl hugsana, tilfinninga og hegðunar
- Jákvæð áhrif reglulegrar hreyfingar
- Heilbrigðar matarvenjur
- Þjálfun Svengdarvitundar
Í boði eru vikulegir hóptímar í sex skipti. Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu.