Umsóknarfrestur um starf framkvæmdastjóra lækninga Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins rann út 17. febrúar síðastliðinn.
Umsækjendur voru fjórir:
- Kristján G. Guðmundsson
- Oddur Steinarsson
- Sigríður Dóra Magnúsdóttir
- Einn umsækjandi dró umsókn sína til baka.
Umsóknir hafa verið sendar til stöðunefndar hjá Landlæknisembættinu. Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum.