Námskeið um uppeldi barna með ADHD 2013

Mynd af frétt Námskeið um uppeldi barna með ADHD 2013
23.08.2013

Tilgangur námskeiðsins er að fræða foreldra um áhrif ADHD á tilveru barna og styðja þá við að tileinka sér uppeldisaðferðir sem henta börnum með þessa og tengdar raskanir.

Foreldrar eru studdir til að skoða núverandi stöðu, gera áætlanir og framfylgja þeim til að taka á eða fyrirbyggja ýmsan vanda sem algengt er að upp komi. Markmiðið er að foreldrar læri hagnýtar og sannreyndar aðferðir sem nýtast þeim til lengri tíma.

Hvert námskeið er 12 klukkustundir og skiptist í 6 skipti, 2 tíma í senn. Fyrstu 5 skiptin eru vikulega, en síðasti tíminn er tveimur vikum á eftir þeim 5.

Í hverjum tíma veita leiðbeinendur fræðslu um ákveðin grundvallaratriði, studd af námskeiðsgögnum. Rík áhersla er lögð á umræður og virka þátttöku foreldra til að tryggja að efnið nýtist hverjum og einum sem best. Milli tíma vinna foreldrar heimaverkefni sem rædd eru í næsta skipti og ráðgjöf er gefin um framhaldið. Að auki býðst einstaklingsráðgjöf milli tíma ef þörf krefur. Hver áfangi námskeiðsins byggir á því sem á undan er gengið og því mikilvægt að gera ráðstafanir til að geta sótt alla tímana. Mælt er með því að báðir foreldrar sæki námskeiðið.

Leiðbeinendur hverju sinni eru tveir fagaðilar sem hafa staðgóða reynslu af fræðslu og ráðgjöf til foreldra um uppeldi og eru sérfróðir um ADHD og skyldar raskanir.

  • Námskeið 1 hefst 18. september 2013. Tímar eru vikulega á miðvikudögum til 16. október, þá er viku hlé og síðasti tíminn er 30. október
  • Námskeið 2 hefst 3. október 2013. Tímar eru vikulega á fimmtudögum til 31. október, þá er viku hlé og síðasti tíminn er 14. nóvember.  
  • Námskeiðin eru haldin á Þroska-og hegðunarstöð, Þönglabakka 1,  kl. 19:30–21:30.
  • Þátttökugjald er kr. 10.000 fyrir einstaklinga og kr. 13.500 fyrir pör.