Skráning er hafin á Uppeldi sem virkar haust 2013

Mynd af frétt Skráning er hafin á Uppeldi sem virkar haust 2013
12.08.2013

Skráning er hafin á Uppeldi sem virkar - færni til framtíðar

Uppeldisnámskeiðin eru haldin á Þroska- og hegðunarstöð og fjölmargar dagsetningar eru í boði. 

Þessi námskeið, sem hafa verið mjög vel sótt undanfarin ár, miða að því að skapa sem best uppeldisskilyrði fyrir börn með því að kenna foreldrum jákvæðar og árangursríkar aðferðir.

Fjallað er um hvernig er hægt að:

  • Koma í veg fyrir hegðunarerfiðleika
  • Hjálpa börnum að þróa með sér öryggi, sjálfstæði og jákvæðni
  • Auka eigin styrkleika og færni í foreldrahlutverkinu
  • Nota aga á jákvæðan og árangursríkan hátt
  • Kenna börnum æskilega hegðun
  • Takast á við venjuleg vandamál í uppeldi

Þannig er lagður grunnur að því að barnið þroski með sér eiginleika og læri færni sem gagnast því til frambúðar. Sömuleiðis er dregið úr líkum á erfiðleikum í hegðun, líðan og samskiptum hjá barninu til lengri og skemmri tíma. Námskeiðin eru niðurgreidd fyrir atvinnulausa foreldra.

Uppeldisnámskeiðin eru haldin á Þroska- og hegðunarstöð og á síðum stöðvarinnar eru nánari upplýsingar um námskeiðin.