Uppeldi sem virkar - Leiðbeinenda- og ráðgjafanámskeið - 27. og 28. ágúst 2013

Mynd af frétt Uppeldi sem virkar - Leiðbeinenda- og ráðgjafanámskeið - 27. og 28. ágúst 2013
30.05.2013

Á Leiðbeinenda- og ráðgjafanámskeiðinu eru kynntar aðferðir og hugmyndafræði Uppeldi sem virkar – Færni til framtíðar og farið rækilega í skipulag, framkvæmd og innihald samnefndra foreldranámskeiða. Rík áhersla er lögð á notkun jákvæðra aðferða í uppeldi, á gildi fyrirmynda, markvissa kennslu æskilegrar hegðunar og nauðsyn fyrirhyggju, skipulags og samkvæmni uppalenda.

Á Leiðbeinendanámskeiðinu er einnig fjallað um uppeldi og uppeldisráðgjöf almennt og farið í hagnýtt efni sem miðar að því að auka færni þátttakenda í að veita árangursríka ráðgjöf um uppeldi bæði til foreldra og starfsfólks í uppeldisstörfum.

Námskeiðið er ætlað fagfólki sem sinnir uppeldisráðgjöf og/eða er í beinum tengslum við börn á ýmsum aldri. Þátttaka á námskeiðinu veitir réttindi til að gerast leiðbeinandi á uppeldisnámskeiðum fyrir foreldra og að nota öll þar til gerð námskeiðsgögn.

Hagnýtar upplýsingar um námskeiðið

  • Þátttakendur: Námskeiðið stendur til boða fagfólki með menntun á uppeldis- eða heilbrigðissviði sem starfar við uppeldi barna og/eða við ráðgjöf og fræðslu um uppeldi til foreldra eða starfsfólks.
  • Hámarksfjöldi þátttakenda á hverju námskeiði er 20.
  • Tímasetning: Þriðjudaginn 27. og miðvikudaginn 28. ágúst 2013, kl. 9:00-15:00 báða dagana.
  • Staður: Þroska- og hegðunarstöð, Þönglabakka 1, 109 Reykjavík, Fundarsalur A.
  • Þátttökugjald: Námskeiðsgjald er 13.000 kr. fyrir starfsfólk heilsugæslu og 16.000 kr. fyrir annað fagfólk. Öll námskeiðs- og kennslugögn auk kaffiveitinga eru innifalin.
  • Skráning er hér á vefnum fyrir 19. ágúst.
  • Leiðbeinendur: Gyða Haraldsdóttir sálfræðingur og Lone Jensen uppeldisráðgjafi.
  • Nánari upplýsingar um námskeiðin má fá á Þroska og hegðunarstöð í síma 585-1350 eða tölvupósti.