Verkefnið ágætis byrjun

Mynd af frétt Verkefnið ágætis byrjun
31.10.2011

Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, afhenti nýbökuðum foreldrum, Auði Jörundsdóttur og Benedikt Hermannssyni, fyrsta pokann í verkefninu Ágætis byrjun á Heilsugæslunni Miðbæ, 26. október. 

Ágætis byrjun er verkefni sem Umhverfisstofnun stendur fyrir til að kynna umhverfismerkið Svaninn og hvetja foreldra til að nota slík merki sem hjálpartæki við vöruval. Svandís lýsti yfir mikilli ánægju með verkefnið og benti á mikilvægi þess að huga vel að vöruvali fyrir ungabörn.

Ágætis byrjun gengur út á að kynna Svaninn og dreifa Svanspokum til nýbakaðra foreldra. Verkefnið er unnið að norskri fyrirmynd en þar hefur sambærilegt verkefni verið í gangi síðan árið 2005. Í pokunum er bæklingur sem fjallar um umhverfismerkið Svaninn og kosti þess að velja umhverfisvottað fyrir ungabörn. Í pokanum eru einnig vöruprufur en tilgangurinn er að varpa ljósi á að Svanurinn hefur vottað breytt úrval af ungbarnavörum og að  foreldrar hafa því raunverulegt val um vöru sem er betri fyrir umhverfið. Verkefninu er ætlað að ná til alls landsins og er miðað við að öll börn fædd á Íslandi á tímabilinu nóvember 2011 til nóvember 2012 fái pokann.

Búið er að dreifa pokunum til fæðingardeilda á landsbyggðinni og heilsugæslustöðva á höfuðborgasvæðinu. Starfsmaður Svansins, Elva Rakel Jónsdóttir, segir að hjúkrunarfræðingar og ljósmæður taki vel í verkefnið. „Ég er þessa dagana að kynna verkefnið fyrir hjúkrunarfræðingum á höfuðborgarsvæðinu og mér er hvarvetna mjög vel tekið. Ég held að heilbrigðisstarfsfólk sjái þörfina fyrir fræðslu af þessu tagi en með verkefninu er í raun verið að sameina umhverfismál og lýðheilsumál“. Yfirhjúkrunarfræðingur heilsugæslunnar í Miðbæ, Jóhanna Eiríksdóttir, telur verkefnið brýnt. „Hér tökum við því fagnandi að styðja við umhverfishugsun, ekki veitir af“.

Svanurinn er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna. Nánari upplýsingar um Svaninn og verkefnið má finna á www.svanurinn.is