Börn á höfuðborgarsvæðinu léttari nú en áður

Mynd af frétt Börn á höfuðborgarsvæðinu léttari nú en áður
01.06.2011

Undanfarin ár hefur mikið verið rætt um líkamsþyngd grunnskólabarna. Í slíkri umræðu er mikilvægt að tekið sé mið af bestu fáanlegu upplýsingum á hverjum tíma en nokkuð hefur borið á ónákvæmni í meðferð bæði talna og hugtaka.

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins og Landlæknisembættið hafa tekið saman upplýsingar og gefið út í skýrslunni "Börn á höfuðborgarsvæðinu léttari nú en áður?" þar sem komið er á framfæri nýjum tölum og stuttri útlistun á lykilhugtökum sem notuð eru um líkamsþyngd barna.

Fyrri rannsóknir, sem byggja á mælingum á hæð og þyngd 9 ára barna á höfuðborgarsvæðinu, sýna að hlutfall barna sem flokkast yfir kjörþyngd jókst mikið frá árinu 1958 til 1998 en nýjar mælingar sýna ekki afgerandi breytingar á síðustu árum á hlutfalli barna sem eru yfir kjörþyngd.

Heilsuvernd skólabarna á höfuðborgarsvæðinu hefur frá vetrinum 2002–2003 skráð rafrænt í Ískrá mælingar á hæð og þyngd nemenda í 1., 4., 7. og 9. bekk grunnskóla. Ískrá er forrit til að skrá heilsufarsupplýsingar skólabarna.

Mælingar í 4. bekk benda til þess að hlutfall barna sem er yfir kjörþyngd sé líklega hætt að aukast eftir mikla aukningu á seinni hluta 20. aldar. Mikilvægt er að hafa í huga að þrátt fyrir traustar mælingar á hæð og þyngd barna þá eru engir árgangar eins og Íslendingar eru ennþá fámenn þjóð. Þess vegna mælast oft breytingar á hlutfalli á milli tveggja ára sem endurspegla ekki endilega langvarandi, undirliggjandi breytingar.

Skoða skýrsluna: Börn á höfuðborgarsvæðinu léttari nú en áður? (pdf)