Tímabundin ókeypis tannlæknaþjónusta fyrir börn

Mynd af frétt Tímabundin ókeypis tannlæknaþjónusta fyrir börn
28.04.2011

Frá 1. maí til og með 26. ágúst verður boðið upp á ókeypis, nauðsynlegar tannlækningar fyrir börn tekjulágra foreldra/forráðamanna. Tannlæknar á tannlæknadeild Háskóla Íslands meta hvað teljast nauðsynlegar tannlækningar og þar er þjónustan veitt.

Tekið verður við umsóknum frá 28. apríl  til og með 1. júní 2011.

Réttur til þjónustunnar

Réttur til þjónustunnar miðast almennt við að barnið búi og hafi lögheimili hjá því foreldri/forráðamanni sem sækir um og að allar skattskyldar tekjur umsækjanda á árinu 2010 séu sem hér segir:

  • Einstæðir foreldrar/forráðamenn með tekjur undir 2.900.000 kr.
  • Hjón eða sambúðarfólk með tekjur undir 4.600.000 kr.
  • Tekjuviðmiðið hækkar um 350.000 kr. fyrir hvert barn umfram eitt.

Heimilt er að víkja frá tekjuviðmiði ársins 2010 ef um verulega lækkun tekna á árinu 2011 er að ræða svo sem vegna atvinnuleysis. Í undantekningartilvikum er heimilt að víkja frá tekjuviðmiðum ef um alvarlegan félagslegan vanda er að ræða.

Þjónustan er fyrir börn alls staðar að af landinu en verður veitt á tannlæknadeild Háskóla Íslands í Læknagarði við Vatnsmýrarveg 16, Reykjavík.

Ekki er tryggt að hægt verði að anna allri eftirspurn þar sem um takmarkaðan tímafjölda tannlækna er að ræða.

Umsókn og nánari upplýsingar

Sækja þarf um þjónustuna á eyðublaði á vef Tryggingastofnunar, www.tr.is, og þar er að finna leiðbeiningar og upplýsingar.

Nánari upplýsingar eru einnig veittar hjá Þjónustumiðstöð Tryggingastofnunar í síma 5604400, gjaldfrjálst númer 8006044 og hjá þeim sýslumönnum sem hafa umboð fyrir TR um allt land.

Tungumál

Hjá Fjölmenningarsetri, www.mcc.is, verða upplýsingar á eftirtöldum tungumálum: Enska, pólska, serbneska/króatíska, taílenska, spænska,  litháíska og rússneska. Þar er einnig  hægt að fá upplýsingar og aðstoð við umsóknir og tímapantanir.

Foreldrar, sem á þurfa að halda, eru hvattir til að leita aðstoðar hjá starfsmönnum leikskóla, grunnskóla og félagsþjónustu sveitarfélaganna við að sækja um aðstoð fyrir börn sín.