Gjafabréf á foreldranámskeið

Mynd af frétt Gjafabréf á foreldranámskeið
09.12.2010

Gjafabréf á foreldranámskeiðið Uppeldi sem virkar - færni til framtíðar

Á Þroska- og hegðunarstöð, Þönglabakka 1, 109 Reykjavík eru til sölu gjafabréf á foreldranámskeiðið „Uppeldi sem virkar - færni til framtíðar".

Á námskeiðunum er lögð áhersla á að kenna foreldrum aðferðir til að skapa æskileg uppeldisskilyrði sem líklegust eru til að skila árangri í lífi barns. Þannig er lagður grunnur að því að barnið þroski með sér mikilvæga eiginleika og læri færni sem nýtist því til frambúðar. Jafnframt er dregið úr líkum á ýmsum erfiðleikum í framtíðinni.

Allir foreldrar eru hvattir til að sækja þessi námskeið, ekki síst þeir sem eiga börn undir þriggja ára aldri. Tveir leiðbeinendur sjá um hvert námskeið sem er samtals 8 klukkustundir og er einu sinni í viku, tvær klukkustundir í senn.

Gjafabréfið kostar kr. 8.000,- fyrir einn ( kr. 10.000,- með Uppeldisbókinni) og kr. 10.000 fyrir tvo ( kr. 12.000,- með Uppeldisbókinni)

Nánari upplýsingar og kaup á gjafabréfi í síma 585-1350 eða með tölvupósti: throski@heilsugaeslan.is