Árleg bólusetning gegn inflúensu 2010

Mynd af frétt Árleg bólusetning gegn inflúensu 2010
04.10.2010

Árleg bólusetning gegn inflúensu hefst á heilsugæslustöðvum mánudaginn 11. október 2010.

Bóluefnið inniheldur tvo A-stofna og einn B-stofn. Annar A-stofninn er A/California/7/2009 (H1N1) og er þar um að ræða svonefnda svínainflúensu. Hinn A-stofninn er A/Perth/16/2009 (H3N2). B-stofninn er B/Brisbane/60/2008.

Hvað er inflúensa, hver eru einkennin og hvenær kemur hún?

Inflúensa er veirusýking sem einkennist af háum hita, þurrum hósta, höfuðverk, beinverkjum, oft með hálssærindum og nefrennsli. Einkennin koma snögglega. Árviss faraldur af völdum inflúensu A og oftast einnig af völdum inflúensu B hefst oft í desember eða janúar, en gera verður ráð fyrir að upphaf inflúensufaraldurs geti verið frá október til mars. Yfirleitt tekur 2–3 mánuði fyrir faraldur að ganga yfir.

Er inflúensan hættuleg?

Hætta á alvarlegum fylgikvillum inflúensu er mest meðal aldraðra og fólks með bælt ónæmiskerfi, en inflúensan leiðir á hverju ári til dauðsfalla meðal eldri borgara.

Hverjum er einkum ráðlagt að láta bólusetja sig?

  • Öllum sem orðnir eru 60 ára
  • Öllum, bæði börnum og fullorðnum, sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum.
  • Starfsfólki heilbrigðisþjónustu sem daglega annast fólk með aukna áhættu.

Þeir sem tilheyra ofangreindum hópum fá bóluefnið sér að kostnaðarlausu en greiða þó komugjald samkvæmt reglugerð nr. 014 / 2010.

Aðrir greiða komugjald og 1.000 kr. fyrir bóluefnið.

Hversu mikil vörn er í bólusetningu?

Búast má við að bólusetning geti veitt a.m.k. 70% vörn gegn sjúkdómnum auk þess sem hann verður vægari hjá þeim í hópi bólusettra sem veikjast. Sóttvarnalæknir leggur áherslu á að sem flestir verði bólusettir, ekki síst þeir sem tilheyra forgangshópum.

Ef þú þarft að fá ráðleggingar, hafðu þá samband við heilsugæslustöðina þína.
Fyrirkomulag bólusetningarinnar getur verið mismunandi milli heilsugæslustöðva. Skoðaðu síðu heilsugæslustöðvarinnar þinnar til að fá nánari upplýsingar. 

Frekari upplýsingar um inflúensu má finna á vef Landlæknisembættisins.

Jafnframt er minnt á að þeir sem á þurfa að halda geta í leiðinni fengið bólusetningu við lungnabólgu (pneumókokkasýkingu). Sóttvarnalæknir mælir með að 60 ára og eldri láti bólusetja sig á 10 ára festi, og fólk með miltisleysi (aspleníu) eða aðra ónæmisbælandi sjúkdóma á 5 ára fresti. Gjald fyrir það er samkvæmt reglugerð.