Fræðadagar 2010

Mynd af frétt Fræðadagar 2010
03.03.2010

Fræðadagar heilsugæslunnar 18. og 19. nóvember 2010.
Grand Hótel, Reykjavík.

Ramminn
Þingið verður haldið á Grand Hótel Reykjavík, frá kl. 12:00 til 16:30 á fimmtudegi og frá kl. 8.30 til 16:00 á föstudeginum. Sjá nánar hér að neðan. Að auki er möguleiki að halda námskeið í tengslum við þingið fyrir hádegi á fimmtudeginum 18. nóvember.    

Dagskrá
Stefnt er að því að hafa fjölbreytilega dagskrá sem gæti höfðað til sem flestra starfsmanna heilsugæslunnar. Þar verður lögð áhersla á umræður í minni hópum (smiðjum) auk hefðbundinna aðalfyrirlestra, málþinga og frjálsra erinda. Ekki er gert ráð fyrir spjaldþingum (poster sessions). Dagskrá og fyrirlestrar verða að mestu birt á netsíðum.

Helstu viðfangsefni þingsins verða væntanlega: 

  • Stjórnun, starfsmannastefna og stefnumörkun
  • Ásýnd stöðva og viðfangsefni ritara, móttökuritara og kerfisstjóra
  • Lífsstíls-/örlaga-sjúkdómar (hjarta, reykingar, offita, sykursýki, geðraskanir o.fl.
  • Geðræn vandamál og félagsleg aðstaða, fjölskyldur, skóli o.fl.
  • Krabbamein
  • Forvarnir (einkum innan mæðraverndar, ung- og smábarnaverndar, tannverndar og skólaheilsugæslu)
  • Fjölskylduvernd
  • Skimanir
  • Öldrunarmál
  • Málefni innflytjenda
  • Almannatengsl (PR kontaktar)
  • Þroska og hegðunarvandamál
  • Kennsla og vísindi í heilsugæslu

Yfirumsjón og undirbúningur

Anna Margrét Guðmundsdóttir læknir hefur tekið að sér yfirumsjón með Fræðadögum 2010.

Mótun dagskrár er í fullum gagni, en allar hugmyndir og vinnuframlag er vel þegið. Frestur til að senda inn efni rennur út 15. september.

Nánari upplýsingar veita:

Anna Margrét Guðmundsdóttir
Jóhann Ág. Sigurðsson

Myndin er frá Fræðadögum 2009