Foreldranámskeið Uppeldi sem virkar - færni til framtíðar

Mynd af frétt Foreldranámskeið Uppeldi sem virkar - færni til framtíðar
22.01.2009

Foreldranámskeið „Uppeldi sem virkar – færni til framtíðar“ verða haldin á vegum Miðstöðvar heilsuverndar barna næstu mánuði.

Á námskeiðunum er lögð áhersla á að kenna foreldrum aðferðir til að skapa æskileg uppeldisskilyrði sem líklegust eru til að skila árangri í lífi barns. Þannig er lagður grunnur að því að barnið þroski með sér mikilvæga eiginleika og læri færni sem nýtist því til frambúðar. Jafnframt er dregið úr líkum á ýmsum erfiðleikum í framtíðinni. Allir foreldrar eru hvattir til að sækja þessi námskeið, ekki síst þeir sem eiga börn undir þriggja ára aldri.

Næstu námskeið á Miðstöð Heilsuverndar barna:
• 3. – 24. febrúar
• 3. – 24. mars
• 7. – 28. apríl
• 5. – 26. maí

Tímasetning: Námskeiðið er frá klukkan 17 til 19, kennt er á þriðjudögum.
Staðsetning: Miðstöð heilsuverndar barna, Þönglabakka 1.

Nánar um námskeiðið: Tveir leiðbeinendur sjá um hvert námskeið sem er samtals 8 klukkustundir og er einu sinni í viku, tvær klukkustundir í senn. Þátttakendur þurfa að skrá sig fyrirfram og er ætlast til að mætt sé í öll fjögur skiptin.

Verð er 7.000 kr. fyrir parið. Sams konar námskeið eru haldin á ýmsum heilsugæslustöðvum. Stuðst er við Uppeldisbókina og verður hún til sölu á námskeiðinu á kostnaðarverði, 2.000 kr.

Nánari upplýsingar og skráning er hjá Miðstöð heilsuverndar barna í síma 585-1350.