Á Miðstöð heilsuverndar barna eru til sölu gjafabréf á foreldranámskeiðið „Uppeldi sem virkar—færni til framtíðar".
Á námskeiðunum er lögð áhersla á að kenna foreldrum aðferðir til að skapa æskileg uppeldisskilyrði sem líklegust eru til að skila árangri í lífi barns. Þannig er lagður grunnur að því að barnið þroski með sér mikilvæga eiginleika og læri færni sem nýtist því til frambúðar. Jafnframt er dregið úr líkum á ýmsum erfiðleikum í framtíðinni.
Allir foreldrar eru hvattir til að sækja þessi námskeið, ekki síst þeir sem eiga börn undir þriggja ára aldri. Tveir leiðbeinendur sjá um hvert námskeið sem er samtals 8 klukkustundir og er einu sinni í viku, tvær klukkustundir í senn.
Gjafabréf fyrir par kostar kr. 7.000,-
(kr. 9.000,- með Uppeldisbókinni)
Nánari upplýsingar og kaup á gjafabréfi hjá Miðstöð heilsuverndar barna í síma 585 1350 eða með tölvupósti: mhb@mhb.hg.is
Miðstöð heilsuverndar barna er til að húsa að Þönglabakka 1, 109 Reykjavík.