Nýtt húsnæði fyrir Heilsugæsluna Árbæ

Mynd af frétt Nýtt húsnæði fyrir Heilsugæsluna Árbæ
14.03.2008

Undirritaður var leigusamningur um nýtt húsnæði fyrir Heilsugæsluna Árbæ þann 14. mars 2008 .

Húsnæðið er að Hraunbæ 115, leigusali er Faghús ehf., Akralind 6, 201 Kópavogi og er stærð hins leigða húsnæðis 1510 fermetrar. Miðað er við að húsnæðið verði afhent í síðasta lagi 1. desember nk. og er leigusamningurinn til 20 ára.

Með tilkomu hins nýja húsnæðis verður unnt að auka starfsemi stöðvarinnar, en í því verður starfsaðstaða fyrir allt að 10 sérfræðinga í heimilislækningum auk samsvarandi fjölda annarra starfsmanna. Stöðin mun því með flutningi í hið nýja húsnæði geta aukið þjónustuna við íbúa í Árbæ, Norðlingaholt og Grafarholti. Um síðustu áramót voru íbúar svæðisins rúmlega 15 þúsund og hefur fjölgað hin síðari ár.

Í tilefni þess að bæði Heilsugæslan Árbæ og Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts flytjast undir sama þak í nýju og sérhönnuðu húsi á hausti komanda, hefur verið skipuð fjögurra manna samráðsnefnd beggja aðila til að móta nánara og formfastara samstarf þjónustuþáttanna með hagsmuni sameiginlegra skjólstæðinga að leiðarljósi. Bæði heilsugæsla og velferðarþjónusta eru dæmi um mikilvæga nærþjónustu við íbúa sama svæðis og því þykir eðlilegt að koma á nánara samstarfi þjónustuþáttanna, bæði hvað varðar skipulag á þjónustu við sameiginlega skjólstæðinga, og einnig þjónustuframboð almennt.

 

Markmið þessa verkefnis er meðal annars að:

  • auka skilvirkni þjónustuþáttanna
  • auka gæði þjónustunnar
  • kanna mögulega samþættingu þjónustunnar
  • kanna lögformlegan og hagrænan grundvöll fyrir nánara samstarfi heilsugæslunnar og Velferðarsviðs, eins og t. d. sameiginlega móttöku skjólstæðinga og aðra nánari samnýtingu húsnæðis.

Samráðsnefndina skipa:

  1. Sólveig Reynisdóttir framkv.stj.
    Þjónustumiðstöðvar Árbæjar og Grafarholts
    Þorgeir Magnússon deildarstjóri/sálfræðingur
    Margrét Gunnarsdóttir hjúkrunarstjóri Heilsugæslu Árbæjar
    Haraldur Ó. Tómasson, læknir

Samráðsnefndin mun skila áfangaskýrslu til Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar fyrir lok september 2008.