Uppeldisnámskeið

Mynd af frétt Uppeldisnámskeið
06.09.2007

Heilsugæslan hefur undanfarin ár staðið fyrir sérstökum uppeldisnámskeiðum fyrir foreldra ungra barna. Námskeiðin heita Uppeldi sem virkar – færni til framtíðar. Á þeim er lögð áhersla á að kenna foreldrum aðferðir til að skapa æskileg uppeldisskilyrði sem líklegust eru til að skila árangri í lífi barns. Þannig er lagður grunnur að því að barnið þroski með sér mikilvæga eiginleika og læri færni sem nýtist því til frambúðar. Jafnframt er dregið úr líkum á ýmsum erfiðleikum í framtíðinni. Allir foreldrar eru hvattir til að sækja þessi námskeið, ekki síst þeir sem eiga börn undir þriggja ára aldri.

Nánar um námskeiðið: Tveir leiðbeinendur sjá um hvert námskeið sem er samtals 8 klukkustundir og er einu sinni í viku, tvær klukkustundir í senn. Þátttakendur þurfa að skrá sig fyrirfram og er ætlast til að mætt sé í öll fjögur skiptin. Verð er 6000 krónur fyrir einstakling og 9000 krónur fyrir parið. Samskonar námskeið eru haldin á ýmsum heilsugæslustöðvum. Námskeiðið byggir á Uppeldisbókinni sem Skrudda gefur úr og verður hún til sölu á námskeiðinu á kostnaðarverði (1800 kr.).  Sama námskeiðið er einnig haldið víðar.

Námskeið haustmisseri 2007:
Miðstöð heilsuverndar barna (MHB)
4. - 25. september 2007 (þriðjudagar kl. 17-19)
2. - 23. október 2007 (þriðjudagar kl. 17-19)
30. október - 20. nóvember 2007 (þriðjudagar kl. 17-19)
Staðsetning: Miðstöð heilsuverndar barna, Þönglabakka 1. Nánari upplýsingar og skráning er hjá Miðstöð heilsuverndar barna í síma 585-1350.