Uppeldi sem virkar - færni til framtíðar

Mynd af frétt Uppeldi sem virkar - færni til framtíðar
09.01.2007

Foreldranámskeið „Uppeldi sem virkar – færni til framtíðar“ verður haldið hjá Heilsugæslunni Grafarvogi í febrúar og mars nk. Á námskeiðinu er lögð áhersla á að kenna foreldrum aðferðir til að skapa æskileg uppeldisskilyrði sem líklegust eru til að skila árangri í lífi barns. Þannig er lagður grunnur að því að barnið þroski með sér mikilvæga eiginleika og læri færni sem nýtist því til frambúðar. Jafnframt er dregið úr líkum á ýmsum erfiðleikum í framtíðinni. Allir foreldrar eru hvattir til að sækja þetta námskeið, ekki síst þeir sem eiga börn undir þriggja ára aldri.

Kennt er á þriðjudögum á milli klukkan 17 og 19, dagana 20. febrúar, 27. febrúar, 6. mars og 13. mars nk. Leiðbeinendur eru Hrönn Kristjánsdóttir, hjúkrunarfræðingur og Kristín Jóna Vigfúsdóttir, hjúkrunarfræðingur.

Þátttakendur þurfa að skrá sig fyrirfram og er ætlast til að mætt sé í öll fjögur skiptin. Nánari upplýsingar og skráning er hjá hjúkrunarfræðingum í ungbarnavernd og í afgreiðslu í síma 585-7600 og beðið um annaðhvorn leiðbeinandann.

Verð er 6000 krónur fyrir einstakling og 9000 krónur fyrir parið. Sams konar námskeið eru haldin á ýmsum heilsugæslustöðvum. Stuðst er við Uppeldisbókina og verður hún til sölu á námskeiðinu á tæpar tvö þúsund krónur.