Foreldranámskeið hjá Heilsugæslunni Grafarvogi í október nk.

Mynd af frétt Foreldranámskeið hjá Heilsugæslunni  Grafarvogi í október nk.
05.09.2006

Foreldranámskeið „Uppeldi sem virkar – færni til framtíðar“ verða haldið á Heilsugæslunni í Grafarvogi í október nk. Á námskeiðinu er lögð áhersla á að kenna foreldrum aðferðir til að skapa æskileg uppeldisskilyrði sem líklegust eru til að skila árangri í lífi barns. Þannig er lagður grunnur að því að barnið þroski með sér mikilvæga eiginleika og læri færni sem nýtist því til frambúðar. Jafnframt er dregið úr líkum á ýmsum erfiðleikum í framtíðinni. Allir foreldrar eru hvattir til að sækja þetta námskeið, ekki síst þeir sem eiga börn undir þriggja ára aldri.

Kennt er á þriðjudögum á milli  klukkan 17 og 19,
dagana 24. okt., 31. okt., 7. nóv. og 14. nóv. nk.

Leiðbeinendur eru Julia Werner og Inga María Vilhjálmsdóttir. Þátttakendur þurfa að skrá sig fyrirfram og er ætlast til að mætt sé í öll fjögur skiptin. Verð er 6000 krónur fyrir einstakling og 9000 krónur fyrir parið. Sams konar námskeið eru haldin á ýmsum heilsugæslustöðvum. Stuðst er við Uppeldisbókina og verður hún til sölu á námskeiðinu á tæpar tvö þúsund krónur.

Nánari upplýsingar og skráning er í síma 585-7600 og beðið um annað hvorn leiðbeinandann.