Námskeiðið er ætlað börnum í 6.-7. bekk með hamlandi kvíða og foreldrum þeirra.

Um námskeiðið

Klókir Krakkar (Cool Kids Program) er meðferðarúrræði sem var þróað hjá áströlsku rannsóknamiðstöðinni Macquire University Anxiety Research Unit (MUARU) í samvinnu við Ronald M. Rapee og samstarfsmenn hans. BUGL sá um að koma í gagnið íslenskri útgáfu  námskeiðsins 2005 og hefur það verið haldið þar og á Þjónustumiðstöðvum í Reykjavík síðastliðin ár.

Námskeiðið er ekki ætlað börnum á einhverfurófi

Hvert námskeið er 12 klukkustundir og skiptist i 8 skipti. kl. 15:30 - 17:00. Fyrstu 6 skiptin eru vikulega, síðan líður vika á milli fyrir tíma 7 og tíma 8.

Í upphafi meðferðar fá börn og foreldrar vinnubækur. Þau eru frædd um eðli kvíða og kenndar aðferðir til að takast smám saman á við kvíða barnanna. Börnunum er kennt að hugsa eins og einkaspæjari þar sem þau finna sannanir fyrir óraunsæjum kvíðahugsunum og læra að hugsa á raunsæjan hátt. Einnig er farið í stigvaxandi berskjöldun þar sem börnin læra að mæta óttanum í litlum skrefum. 

Í seinni hluta meðferðarinnar er farið í félagslega færni og ákveðniþjálfun. Foreldrar fá fræðslu um kvíðaeinkenni og úrræði, hvernig er að ala upp barn sem þjáist af kvíða og farið er yfir hvað börnin læra í hverjum tíma fyrir sig. 

Fyrirkomulag

Námskeiðið er ætlað börnum í 6. - 7. bekk með hamlandi kvíða og foreldrum þeirra. Gert er ráð fyrir 7 - 8 börnum á hverju námskeiði og munu þrír sálfræðingar stýra hverjum tíma. Börnin vinna saman í hóp með tveimur sálfræðingum og foreldrar vinna í öðrum hópi með einum sálfræðing. Börnin vinna sér þar að auki inn smá umbun í hverjum tíma fyrir þátttöku, heimaverkefni og fleira.  

Námskeiðsgjaldið er kr. 22.400.

Verð er samkvæmt gjaldskrá, með viðbættum kostnaði við námskeiðsgögn.

Næsta námskeið

Ekkert námskeið á döfinni. 

Fyrirspurnum er svarað á netfanginu throski@heilsugaeslan.is.