Námskeiðið er fyrir ungmenni á einhverfurófi og er skipt í tvo hópa eftir aldri. Yngri hópurinn miðar við aldurinn 13-16 ára og eldri hópurinn 17 ára og eldri (framhaldsskólaaldur).
Tilgangur námskeiðsins er að kenna unglingum færniþætti byggða á díalektískri atferlismeðferð (DAM) og þar með hjálpa unglingum að vera sátt við eigin hugsanir og hegðun.
Áhersla er á það sem unglingurinn sjálfur hefur stjórn á.
Efni námskeiðsins:
- tilfinninga- og orkustjórn
- núvitund
- streituþol
- að finna milliveginn
- aukinn sjálfsskilningur
- og fleira