Hægt er að senda gögn með öruggum hætti til Geðheilsuteymis taugaþroskaraskana með Signet transfer. Nauðsynlegt er að hafa rafræn skilríki. Hlekkur í örugg gagnaskil
Ný staðsetning í Skógarhlíð 18
Almennar upplýsingar
Hafa samband
Svarað er í síma 513-6750 á mánudögum frá kl. 11 til 12 vegna tilvísana.
Þjónustutími
Alla virka daga frá kl. 8 til 16.
Örugg gagnaskil og póstsendingar
Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana starfar á landsvísu
Fyrir hverja er teymið?
Í markhópi teymisins eru einstaklingar 18 ára og eldri með alvarlegar og/eða óvenjulegar taugaþroskaraskanir en fyrst og fremst þroskahömlun.
Hluti hópsins er með einhverfu auk annars samþætts heilsufarsvanda tengdum fötlun s.s. flogaveiki, CP og/eða hreyfihömlun. Að auki þarf að vera til staðar klínískur geðrænn vandi og/eða krefjandi hegðun.
Nánari skýringar:
Þegar samþykktar eru tilvísanir fyrir einstaklinga með einhverfu án þroskahömlunar er stuðningsþörf einstaklings á aðlögunarfærnimati (t.d. Vineland) sambærileg og hjá einstaklingi með þroskahömlun.
Óvenjuleg taugaþroskaröskun getur t.d. átt við sjaldgæfan erfðafræðilegan breytileika sem getur orsakað geðrænan vanda.
Krefjandi hegðun felur í sér hegðun þar sem greina þarf hvort hegðunin tengist fötlun/þroskahömlun einstaklings eða stafi af geðrænum eða heilsufarslegum vanda.
Um teymið
Tekið er við umsóknum frá heimilislæknum á heilsugæslum og/eða heilbrigðisstofnunum.
Þjónustan er þverfagleg og er veitt með heimavitjunum og viðtölum í húsnæði teymisins. Í teyminu starfa atferlisfræðingur, geðlæknir, heimilislæknir, hjúkrunarfræðingar, iðjuþjálfi, sálfræðingur, skrifstofustjóri og þroskaþjálfar.
Teymið sinnir ekki frumgreiningu s.s. vegna gruns um einhverfu eða skyldar raskanir.
Almennar upplýsingar
- Opið virka daga frá klukkan 8 til 16
- Sími: 513-6750
- Heimilisfang: Skógarhlíð 18, 105 Reykjavík
- Netfang: tteymi@heilsugaeslan.is
Fyrir hverja er þjónustan?
- Þjónustan er fyrir 18 ára og eldri
- Fólk með þroska·hamlanir og einhverfu sem þarf geðheilbrigðis·þjónustu
- Heimilislæknir þarf að biðja um þjónustuna
- Geðheilsu·teymið hjálpar fólki á öllu landinu
Hvert er hlutverk geðheilsu·teymisins?
- Að styðja fólk:
- við að líða betur
- í að lofa góðu lífi
- við að líða betur
- Að veita ráðgjöf
- Við styðjum líka:
- aðstandendur
- starfsfólk:
- á heimilum
- á vinnustöðum
- á heimilum
- aðstandendur
Hvernig styðjum við fólk?
- Við metum hvernig fólki líður
- Við skoðum hvernig lyf hjálpa
- Við veitum meðferð
- Við fræðum fólk
- Við hjálpum fólki að finna meiri stuðning
Hvernig vinnum við?
- Við virðum fólkið sem við hjálpum
- Við tölum við fólkið sem við hjálpum
- Við heimsækjum fólkið sem við hjálpum
- Við tölum við þjónustuaðila
Hvað gerist þegar meðferðin er búin?
- Við tölum við þau sem halda áfram að hjálpa fólki
- Við tölum áfram við fólkið sem við hjálpum í síma
Um geðheilsu·teymið
- Yfir·menn:
- Teymisstjóri: Bjargey Una Hinriksdóttir
- Yfirlæknir: Dagur Bjarnason
- Teymisstjóri: Bjargey Una Hinriksdóttir
- Þagnarskylda er um allt sem varðar fólk í þjónustu
Hlutverk og markmið þjónustu geðheilsuteymisins
- Að stuðla að og viðhalda bata og færni.
- Að tryggja einstaklingsmiðaða þjónustu.
- Að tryggja samfellu og samþættingu í meðferð.
- Að efla sálrænt og félagslegt heilbrigði einstaklingsins.
- Að hvetja til sjálfshjálpar og sjálfsvirðingar.
- Að styðja einstaklinginn í að lifa innihaldsríku lífi.
- Að veita stuðning og ráðgjöf til aðstandenda og starfsfólks stoðþjónustu sveitarfélaga.
Einstaklingurinn í fyrirrúmi
- Þjónusta teymisins er heildræn og notendamiðuð með áherslu á samþætta nálgun. Teymið hefur að leiðarljósi að skoða alla þætti sem hafa áhrif á andlega heilsu.
- Einstaklingurinn er í fyrirrúmi, hans óskir, gildi og þarfir.
- Áhersla er lögð á þá meðferð sem einstaklingurinn þarfnast hverju sinni út frá klínísku mati.
- Stuðst er við gagnreyndar aðferðir og árangur metinn reglulega.
Þjónusta
- Efla styrkleika til að ná tökum á bata og líðan.
- Auka þekkingu á leiðum til að ná jafnvægi í daglegu lífi.
- Auka skilning, styrk og getu til að takast á við geðrænan vanda.
- Mat á andlegri líðan og líkamlegu ástandi.
- Mat á lyfjameðferð.
- Meðferð, fræðsla og stuðningur til einstaklingsins, fjölskyldu hans og/eða stuðningsaðila
- Stuðningur til að auka félagslega virkni og gildi í daglegu lífi.
- Ráðleggingar um hvar hægt sé að fá frekari stuðning eða fræðslu.
Áherslur og hugmyndafræði
Áhersla er á samskipti við hinar ýmsu stofnanir, þjónustu- og stuðningsaðila og félagasamtök. Unnið er á jafnræðisgrunni með áherslur á einstaklinginn í fyrirrúmi.
Stuðst er við hugmyndafræði sjálfstæðs lífs, valdeflingar, Bjargráðakerfisins Bjargar (byggt á díalektískri atferlismeðferð) og rannsóknir í taugavísindum.
Fyrir hverja er þjónustan?
Þjónustan er fyrir fólk 18 ára og eldri með þroskahamlanir og/eða hamlandi einhverfu sem þarfnast sértækrar geðheilbrigðisþjónustu vegna geðræns vanda
Sérhæfing teymisins verður fyrir þann hóp sem þarfnast sértækrar nálgunar vegna sinnar fötlunar.
Mikilvægt er að önnur þjónusta, svo sem þjónusta frá heilsugæslu og/eða almenn geðheilsuþjónusta hafi verið fullreynd áður en sótt er um til geðheilsuteymis taugaþroskaraskana.
Útskrift
Við útskrift verður haft samband við einstaklinginn og þann aðila sem óskaði eftir þjónustu geðheilsuteymisins og þeim gerð grein fyrir stöðu mála hjá viðkomandi einstaklingi.
Einnig verður haft samráð við stoðþjónustu einstaklings og málastjóra í nærumhverfi ef við á.
Símaeftirfylgd.
Hvernig er sótt um þjónustuna?
Tekið er við tilvísunum frá heimilislæknum.
Þeir senda tílvísanir rafrænt í gegnum Sögu-kerfið.
- Heilsugæslur á höfuðborgarsvæðinu nota: Beiðni um meðferð, velja viðeigandi deild og fylla út flýtitexta.
- Heimilislæknar á landsbyggðinni nota: Tilvísun, velja viðeigandi deild og fylla út flýtitexta.
Mikilvægt er að tilvísun sé vel útfyllt svo hægt sé að taka afstöðu til hennar. Flýtitextinn minnir á hvað þarf að koma fram. Ófullnægjandi tilvísun verður endursend.
Í framhaldi af tilvísun er óskað eftir samþykki og frekari upplýsingum frá notanda og/eða stuðningsaðilum hans.
- Þegar annað fagfólk sendir inn greinargerð til stuðnings tilvísun er hún send í gegnum örugg gagnaskil. Nauðsynlegt er að hafa rafræn skilríki.
- Hlekkur í gagnaskil
- Ef ekki er hægt að nota gagnaskil er mikilvægt að greinargerð sé send í ábyrgðarpósti til geðheilsuteymisins (Skógarhlíð 18, 105 Reykjavík).
Samvinna fyrir þig
Geðheilsuteymið byggir á þverfaglegri samvinnu til að veita öflugri þjónustu
Í teyminu starfa atferlisfræðingur, geðlæknir, heimilislæknir, hjúkrunarfræðingur, iðjuþjálfi, sálfræðingur og þroskaþjálfi.
Samsetning fagstétta hverju sinni getur verið mismunandi.
Um teymið
Yfirlæknir: Dagur Bjarnason
Við viljum vita hvað þér finnst um þjónustu okkar. Þú getur sent okkur tölvupóst eða talað beint við starfsfólkið.
Ábendingar um hvað betur má fara hjálpa okkur að gera enn betur.