Meðferðaraðili - Geðheilsumiðstöð barna HH

Hefur þú áhuga á að styðja við tengslamyndun foreldra og barna frá 0-5 ára?

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar að meðferðaraðila til starfa í fjölskylduteymi 0-5 ára hjá Geðheilsumiðstöð barna. 

Geðheilsumiðstöð barna (GMB) veitir 2. stigs heilbrigðisþjónustu á landsvísu fyrir fjölskyldur með börn frá meðgöngu að 18 ára aldri. Miðstöðin sinnir greiningu, ráðgjöf og meðferð vegna geð- og þroskavanda barna og unglinga ásamt því að styðja við tengslamyndun foreldra og barna frá 0-5 ára. Starfshópur GMB er þverfaglegur og vinnur eftir markvissu skipulagi með fagleg gæði að leiðarljósi. Áhersla er á gott viðmót og fjölskyldumiðaða þjónustu. GMB á reglulegt samstarf við þjónustuveitendur víðsvegar um landið og sinnir starfsþjálfun háskólanema á sviðinu.

Um er að ræða 80-100% ótímabundið starf, ráðið er í starfið frá 1. maí nk. eða eftir nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Fjölskylduteymi 0-5 ára veitir snemmtækan, samþættan stuðning við börn og fjölskyldur þeirra með það að markmiði að efla tengsl, foreldranæmi og andlega velferð barna og fjölskyldna þeirra. Unnið er út frá tengslamiðaðri nálgun með börn og foreldra/forsjáraðila, með farsæld fjölskyldunnar að leiðarljósi. Meðferðaraðili starfar í þverfaglegu teymi og er fjölskylduvinna einn lykilþátta starfsins. Meðferðaraðili tekur einnig virkan þátt í umbótastarfi og þróun þjónustu. 

Hæfnikröfur

  • Löggilt háskólanám af heilbrigðis- eða félagsvísindasviði skilyrði, t.d. í félagsráðgjöf, fjölskyldufræði, sálfræði, hjúkrun eða sambærilegu námi
  • Framhaldsmenntun í fjölskyldumeðferð eða sambærilegri tengslamiðaðri meðferð kostur
  • Reynsla af meðferðarvinnu skilyrði
  • Reynsla af þverfaglegri teymisvinnu kostur
  • Reynsla af hópmeðferð eða námskeiðshaldi fyrir foreldra kostur
  • Hlýlegt viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Faglegur metnaður
  • Sjálfstæði, frumkvæði, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð 
  • Hæfni til að veita meðferð í flóknum aðstæðum og lausnamiðuð nálgun
  • Áhugi og vilji til að starfa í þverfaglegu teymi
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Góð íslenskukunnátta
  • Góð almenn enskukunnátta 

Nánari Lýsing

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Jafnframt skal leggja fram afrit af leyfisbréfi og staðfestar upplýsingar um menntun ásamt hreinu sakavottorði. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdastjóra mannauðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.

Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall er 80 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 25.02.2026

Nánari upplýsingar veitir

Linda Kristmundsdóttir - Linda.Kristmundsdottir@heilsugaeslan.is - 513-6600

Ásgerður Arna Sófusdóttir - asgerdur.arna.sofusdottir@heilsugaeslan.is - 513-6600

HH Geðheilsumiðstöð barna
Álfabakki 16
109 Reykjavík

Sækja um starf »