Almennur læknir - Geðheilsumiðstöð barna

Hefur þú áhuga á að starfa í þverfaglegu teymi og sinna fjölskyldum með börn frá meðgöngu að 18 ára aldri?  

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar af almennum lækni til starfa hjá Geðheilsumiðstöð barna. Um er að ræða 80 - 100% ótímabundið starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. apríl n.k. eða eftir nánara samkomulagi. 

Geðheilsumiðstöð barna (GMB) veitir 2. stigs heilbrigðisþjónustu á landsvísu fyrir börn  frá meðgöngu að 18 ára aldri, ásamat því að styðja við tengslamyndun foreldra og barna frá 0-5 ára.  Miðstöðin sinnir greiningu, ráðgjöf og meðferð vegna geð- og þroskavanda barna og unglinga. Starfshópur GMB er þverfaglegur og vinnur eftir markvissu skipulagi með fagleg gæði að leiðarljósi. Áhersla er á gott viðmót og fjölskyldumiðaða þjónustu. GMB á reglulegt samstarf við þjónustuveitendur víðsvegar um landið og sinnir starfsþjálfun háskólanema á sviðinu. 

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is). 

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið felst einkum í aðstoð við greiningu, ráðgjöf og meðferð barna með þroska-, hegðunar- og geðheilbrigðisvanda í þverfaglegu samstarfi við aðra sérfræðinga stöðvarinnar. Starfað er í  teymi með öðrum sérfræðingum og þátttaka í þróun og mótun þjónustu GMB. Boðið er upp á handleiðslu reynds sérfræðings og fjölbreytt starf í örvandi starfsumhverfi og góðum starfsanda.

Hæfnikröfur

  • Íslenskt lækningaleyfi
  • Áhugi og/eða reynsla af greiningu og meðferð barna með geðheilbrigðisvanda.
  • Faglegur metnaður, sjálfstæði í starfi og lausnamiðuð nálgun
  • Frumkvæði og öguð vinnubrögð.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum 
  • Áhugi á að starfa í þverfaglegu teymi.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni, fagmennska og jákvæðni
  • Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
  • Góð íslenskukunnátta og gott vald á rituðu íslensku máli
  • Góð almenn tölvukunnátta

Nánari Lýsing

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá  ásamt kynningarbréfi þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um læknismenntun og fyrri störf, afrit af opinberu starfsleyfi ásamt hreinu sakavottorði. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum, frammistöðu í viðtali og umsögnum. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdastjóra mannauðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. 

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall er 80 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 09.02.2026

Nánari upplýsingar veitir

Linda Kristmundsdóttir - Linda.Kristmundsdottir@heilsugaeslan.is - 513-6600

Guðrún B Guðmundsdóttir - gudrun.bryndis.gudmundsdottir@heilsugaeslan.is - 513-6600

HH Geðheilsumiðstöð barna
Álfabakki 16
109 Reykjavík

Sækja um starf »