Iðjuþjálfi - Heimahjúkrun HH

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins óskar eftir að ráða iðjuþjálfa í Heimahjúkrun. Um er að ræða 100% tímabundið starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. 

Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sinnir heimahjúkrun í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði og er með aðsetur í nýju og glæsilegu húsnæði að Miðhrauni 4 í Garðabæ. Hlutverk heimahjúkrunar er að veita einstaklingsmiðaða hjúkrun sem er sérsniðin að þörfum hvers og eins þar sem forvarnir, heilsuvernd, heilsuefling, fagleg þekking og samstarf eru höfð að leiðarljósi. 

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).

Helstu verkefni og ábyrgð

Iðjuþjálfi vinnur sjálfstætt en er í náinni samvinnu við aðra starfsmenn heimahjúkrunar. Hann veitir stuðning og ráðgjöf til skjólstæðinga og aðstandenda þeirra varðandi aðbúnað á heimili og úrræði þannig að skjólstæðingur geti verið öruggur í daglegu umhverfi sínu. Hann styður skjólstæðinga við að fylgja meðferðaráætlun og endurmetur þarfir þeirra í samræmi við hana. Lögð er áhersla á aðgengilega þjónustu og að skjólstæðingar séu virkir í meðferð. Iðjuþjálfi vinnur að því að efla og viðhalda iðju og færni þannig að skjólstæðingur geti sinnt sínum daglegu verkefnum eins og hægt er. Iðjuþjálfi sinnir einnig stuðningi, ráðgjöf og fræðslu til starfsmanna heimahjúkrunar.

Hæfnikröfur

  • Háskólamenntun til starfsréttinda sem iðjuþjálfi og íslenskt starfsleyfi frá Embætti landlæknis
  • 3 ára starfsreynsla æskileg
  • Framúrskarandi samskiptahæfni
  • Reynsla og hæfni til að vinna í þverfaglegu teymi
  • Fagleg vinnubrögð og áhugi á að vinna við heimahjúkrun
  • Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun i starfi 
  • Góð íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta skilyrði 
  • Góð enskukunnátta
  • Gilt ökuleyfi 
  • Hreint sakavottorð 

Fríðindi í starfi:

  • Heilsueflingarstyrkur
  • Samgöngustyrkur

Nánari Lýsing

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um menntun. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdastjóra mannauðssviðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Umsókn getur gilt í 6 mánuði

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 29.01.2026

Nánari upplýsingar veitir

Hildur Sigurjónsdóttir - hildur.sigurjonsdottir@heilsugaeslan.is - 513-6900

HH Heimahjúkrun á Suðursvæði, hjúkrun
Miðhraun 4
210 Garðabær

Sækja um starf »