Ljósmóðir - Heilsugæslan Garðabæ
Heilsugæslan Garðabæ leitar að ljósmóður sem er tilbúin að takast á við fjölbreytt og skemmtileg verkefni á spennandi vettvangi sem er í sífelldri þróun. Ef þú telur þig vera manneskjuna í starfið, hvetjum við þig eindregið til að senda inn umsókn.
Um er að ræða ótímabundið 40-70% starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. mars eða eftir nánara samkomulagi.
Heilsugæslan er fjölskylduvænn vinnustaður og góð samvinna er á milli starfstétta. Á stöðinni starfa sérfræðingar í heimilislækningum ásamt hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum, sálfræðingum, sjúkraþjálfara og riturum.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).
Helstu verkefni og ábyrgð
Megin starfssvið ljósmóður er mæðravernd og leghálsskimanir ásamt ung- og smábarnavernd.
Mæðravernd er í höndum ljósmæðra og heimilislækna á heilsugæslustöðvum og samráð er haft við fæðingarlækna ef þörf er á. Markmið með mæðravernd heilsugæslunnar er m.a. að stuðla að heilbrigði móður og barns, veita stuðning og ráðgjöf, greina áhættuþætti og veita fræðslu um meðgöngu og fæðingu.
Markmið ung- og smábarnaverndar er að efla heilsu, vellíðan og þroska ungra barna með reglulegum heilsufarsskoðunum ásamt stuðningi og heilbrigðisfræðslu til fjölskyldna þeirra.
Hæfnikröfur
- Íslenskt hjúkrunarleyfi skilyrði
- Starfsleyfi sem ljósmóðir
- Reynsla af leghálsskimunum kostur
- Reynsla af vinnu á fæðingardeild og/eða meðgöngudeild kostur
- Reynsla sem ljósmóðir á heilsugæslustöð kostur
- Reynsla við að nota rafræna mæðraskrá
- Góð þekking/próf í brjóstagjafaráðgjöf
- Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæði í starfi
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
Nánari Lýsing
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
Starfshlutfall er 40 - 70%
Umsóknarfrestur er til og með 26.01.2026
Nánari upplýsingar veitir
Margrét Björnsdóttir - margret.bjornsdottir@heilsugaeslan.is - 513-5500
HH Garðabæ hjúkrun
Garðatorgi 7
210 Garðabær