Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Seltjarnarnes og Vesturbæ

Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi í skólahjúkrun og heilsuvernd aldraða. Um er að ræða 100% tímabundið starf til eins árs. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi. 

Við leitum að hjúkrunarfræðingi sem er tilbúinn að takast á við fjölbreytt verkefni á spennandi vettvangi sem er í sífelldri þróun. Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ er fjölskylduvænn vinnustaður og á stöðinni er frábær starfsandi og góð samvinna á milli fagstétta. 

Ný og spennandi tækifæri eru til starfsþróunar innan HH, þar sem hjúkrunarfræðingum stendur til boða að þróa sig í starfi s.s starfsþróunarár og sérnám í heilsugæsluhjúkrun. Heilsugæslan leggur áherslu á einstaklingsmiðaða aðlögun og stuðning við nýja starfsmenn.  

Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is)

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfssvið heilsugæsluhjúkrunar er víðtækt og sinnir heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ fólki á öllum aldri. 

Skólahjúkrunarfræðingur sinnir reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Auk þess sinnir hann öðrum viðfangsefnum sem upp kunna að koma í samstarfi við annað starfsfólk skólans og foreldra eftir þörfum hverju sinni. 

Í heilsuvernd aldraða leitast hjúkrunarfræðingur við að styðja eldra fólk til að efla og viðhalda andlegu, líkamlegu og félagslegu heilbrigði. Þjónustan felst í að greina áhættuþætti og veita fræðslu sem snerta heilsu og líðan. Hjúkrunarfræðingur veitir jafnframt ráðgjöf, leiðsögn og upplýsingar um þau þjónustuúrræði sem eru í boði. 

Hæfnikröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Þekking og áhugi á forvarnar- og heilsueflingarstarfi
  • Reynsla af heilsugæsluhjúkrun kostur
  • Reynsla af skólahjúkrun kostur
  • Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
  • Reynsla og áhugi á teymisvinnu
  • Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki
  • Íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta

Nánari Lýsing

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Sigurborgu Jónsdóttir, framkvæmdastjóra mannauðssviðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt að óska eftir hreinu sakavottorði.

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttinda stefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall er 100 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 05.01.2026

Nánari upplýsingar veitir

María Kristinsdóttir - maria.kristinsdottir@heilsugaeslan.is - 5136146

HH Seltjarnarnesi hjúkrun
Suðurströnd
170 Seltjarnarnes

Sækja um starf »