Barna- og unglingageðlæknir - Geðheilsumiðstöð barna

Hefur þú áhuga á að taka þátt í starfi með börnum og unglingum með taugaþroskafrávik og/eða geðrænan vanda? 

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar að barna- og unglingageðlækni til starfa hjá Geðheilsumiðstöð barna. Starfað er í þverfaglegu teymi við ráðgjöf, greiningu og meðferð barna með taugaþroskafrávik og/eða geðrænan vanda. 

Geðheilsumiðstöð barna (GMB) veitir 2. stigs heilbrigðisþjónustu á landsvísu fyrir fjölskyldur með börn frá meðgöngu að 18 ára aldri. Miðstöðin sinnir greiningu, ráðgjöf og meðferð vegna geð- og þroskavanda barna og unglinga ásamt því að styðja við tenglsamyndun foreldra og barna 0-5 ára. Starfshópur GMB er þverfaglegur og vinnur eftir markvissu skipulagi með fagleg gæði að leiðarljósi. Áhersla er á gott viðmót og fjölskyldumiðaða þjónustu. GMB á reglulegt samstarf við þjónustuveitendur víðsvegar um landið og sinnir starfsþjálfun háskólanema á sviðinu. 

Um er að ræða 80-100%  ótímabundið starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. febrúar  nk. eða eftir nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Barna- og unglingageðlæknir starfar í þverfaglegu teymi og felst starfið einkum í greiningu, ráðgjöf og meðferð til barna með taugaþroskafrávik og/eða geðrænan vanda og fjölskyldna þeirra.  Barna-og unglingageðlæknir tekur virkan þátt í umbótastarfi og þróun þjónustu.   Þróunar- og rannsóknarvinna eru mikilvægir þættir í starfi auk samvinnu við aðra fagaðila innan sem og utan stofnunar.

Hæfnikröfur

  • Íslenskt lækningaleyfi skilyrði
  • Sérfræðimenntun í barnageðlækningum 
  • Staðgóð þekking, reynsla og/eða áhugi á greiningu og meðferð barna með taugaþroskafrávik og/eða geðrænan vanda
  • Reynsla af starfi í þverfaglegu teymi
  • Faglegur metnaður, góð samskiptahæfni og jákvætt viðhorf 
  • Frumkvæði, öguð vinnubrögð og sjálfstæði í starfi
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og áhugi til að starfa í þverfaglegu teymi
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Góð færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku skilyrði
  • Góð almenn enskukunnátta æskileg  

Nánari Lýsing

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá  ásamt kynningarbréfi þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um læknismenntun og fyrri störf, afrit af opinberu starfsleyfi ásamt hreinu sakavottorði. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum, frammistöðu í viðtali og umsögnum. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Sigurborgu Jónsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. 

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.

Starfshlutfall er 80 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 05.01.2026

Nánari upplýsingar veitir

Linda Kristmundsdóttir - Linda.Kristmundsdottir@heilsugaeslan.is - 513-6600

Guðrún B Guðmundsdóttir - gudrun.bryndis.gudmundsdottir@heilsugaeslan.is - 513-6600

HH Geðheilsumiðstöð barna
Álfabakki 16
109 Reykjavík

Sækja um starf »