Hjúkrunarfræðingur - Upplýsingamiðstöð HH
Vilt þú verða hluti af öflugum hópi hjúkrunarfræðinga á Upplýsingamiðstöð HH?
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins auglýsir eftir hjúkrunarfræðingum til starfa við Upplýsingamiðstöð HH. Um er að ræða ótímabundin störf í breytilegu starfshlutfalli á öllum tímum sólarhringsins. Vinnufyrirkomulag er samkomulagsatriði. Æskilegt er að viðkomandi hefji störf 1. janúar nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Vegna aukinna umsvifa leitum við að hjúkrunarfræðingum sem eru tilbúnir að takast á við fjölbreytt, krefjandi og skemmtileg verkefni á spennandi vettvangi sem er í sífelldri þróun. Upplýsingamiðstöðin leggur áherslu á þverfaglegt samstarf og góða teymisvinnu.
Ef þú hefur áhuga á fjölbreyttri vinnu og framþróun í heilsugæslunni þá hvetjum við þig til að sækja um.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Veita símaráðgjöf og forflokka erindi til heilsugæslustöðva
- Sinna ferðamannaheilsuvernd
- Önnur þróunarverkefni í fjarheilbrigðisþjónustu innan heilsugæslunnar
Hæfnikröfur
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Sjálfstæði í starfi, skipulagningarhæfni og öguð vinnubrögð
- Reynsla af heilsugæslu er æskilegt
- Reynsla af störfum á heilbrigðisstofnun á landsbyggðinni er kostur
- Mikill sveigjanleiki og samskiptahæfni
- Geta til að vinna undir álagi
- Íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti skilyrði
- Góð tölvukunnátta skilyrði
Nánari Lýsing
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Sigurborgu Jónsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir hreinu sakavottorði.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
Starfshlutfall er 50 - 100%
Umsóknarfrestur er til og með 27.11.2025
Nánari upplýsingar veitir
Ingibjörg Rós Kjartansdóttir - ingibjorg.ros.kjartansdottir@heilsugaeslan.is - 513-6400
HH Upplýsingamiðstöð
Álfabakki 16
109 Reykjavík