Sálfræðingur - Heilbrigðisskoðun innflytjenda
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins óskar eftir að ráða sálfræðing til starfa hjá Heilbrigðisskoðun innflytjenda. Um er að ræða 60% ótímabundið starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. desember nk. eða eftir nánara samkomulagi. Til greina kemur að ráða áhugasaman reynsluminni sálfræðing í annað starf fáist ekki sálfræðingur með reynslu í starfið.
Heilbrigðisskoðun innflytjenda er staðsett í Móttökumiðstöð umsækjenda um alþjóðlega vernd í Domus Medica ásamt lögreglu, Útlendingastofnun og fleiri aðilum.
Meginstarfsemi Heilbrigðisskoðunar innflytjenda er að veita flóttamönnum, hælisleitendum og öðrum innflytjendum frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins heilbrigðisskoðun eftir komuna til landsins. Einnig sér heilbrigðisskoðun innflytjenda um að gefa út heilbrigðisvottorð til þeirra einstaklinga sem sækja um atvinnu- og dvalarleyfi á Íslandi.
Hjá Heilbrigðisskoðun innflytjenda starfar sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og áhugaverðu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Hjá okkur ríkir góður starfsandi og áhersla er lögð á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu.
Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi sem hefur áhuga á að taka þátt í þróun og uppbyggingu á starfsemi starfstöðvarinnar. Hjá Heilbrigðisskoðunar innflytjenda er lögð áhersla á góða samvinnu milli fagstétta og að ávallt sé í fyrirrúmi að finna úrlausn fyrir skjólstæðinga.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sálfræðiþjónusta fyrir einstaklinga 18 ára og eldri
- Greining, mat og meðferð á geðrænum vanda, gagnreynd sálfræðimeðferð og ráðgjöf
- Einstaklings- og hópmeðferð
- Námskeiðahald, ráðgjöf og fræðsla
- Handleiðsla og þjálfun nema í klínískri sálfræði
- Þátttaka í þróun og uppbyggingu sálfræðiþjónustu í heilsugæslu
- Samstarf við aðrar heilbrigðisstofnanir s.s. Landspítala og félagsþjónustu
- Önnur tilfallandi verkefni eftir þörfum
Hæfnikröfur
- Leyfi frá landlækni til að starfa sem sálfræðingur er skilyrði
- 5 ára starfsreynsla af klínísku starfi er æskileg
- Reynsla af greiningu og meðferð fullorðinna
- Þekking og reynsla af gagnreyndum sálfræðiaðferðum
- Faglegur metnaður og áhugi á uppbyggingu sálfræðiþjónustu í heilsugæslu
- Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun í starfi
- Reynsla og áhugi á þverfaglegri teymisvinnu
- Góð samskiptahæfni, lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Góð íslenskukunnátta kostur
- Góð enskukunnátta skilyrði
- Önnur tungumálakunnátta kostur
Nánari Lýsing
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Sigurborgu Jónsdóttur, framkvæmdarstjóra mannauðssviðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir sakavottorði.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
Starfshlutfall er 60%
Umsóknarfrestur er til og með 12.11.2025
Nánari upplýsingar veitir
Dagný Baldvinsdóttir - Dagny.Baldvinsdottir@heilsugaeslan.is - 513-5130
HH Heilbrigðisskoðun innflytjenda
Egilsgata 3
101 Reykjavík